Nafn Þjóðverja á fiskimiðum Íslendinga

Það hafa engin vettlingatök dugað um borð í rannsóknaskipinu Anton …
Það hafa engin vettlingatök dugað um borð í rannsóknaskipinu Anton Dohrn. Skipið var smíðað sem síðutogari. Ljósmynd/Thünen-Institut: B. Ulrich

Dohrnbankinn er ósjaldan nefndur í fréttum af veiðum íslenskra fiskiskipa sem og erlendra, sérstaklega grænlenskra. Er þar vísað til fiskimiða á mörkum lögsögu Íslands og Grænlands. En hvaðan kemur þetta nafn, Dohrn, og hvað hefur það með þennan banka að gera?

Um þetta var fjallað í grein í síðasta blaði 200 mílna.

Banki, sem er í raun bara annað heiti yfir grunn, er skilgreindur sem neðansjávarhæð eða hafsvæði sem er grunnt miðað við sjávarbotninn í kring. Myndast á slíkum svæðum oft uppstreymi næringarefna sem skapa grundvöll fyrir fjölbreytt lífríki og kjöraðstæður fyrir fiska. Frægustu bankarnir eru eflaust Doggerbanki í Norðursjó og Miklibanki við Nýfundnaland, en staða fiskistofna á þessum svæðum er þó ekki sérlega góð sökum ofveiði.

Við Dohrnbanka er, eins og við marga banka, að finna einstaklega gjöful fiskimið og sækja þangað skip meðal annars vænan þorsk í stórum stíl. Fiskimiðin voru hins vegar ekki uppgötvuð fyrr en 1955 í leiðangri vesturþýska rannsóknarskipsins Anton Dohrn. Skipið á sér merka sögu og átti um árabil tíða viðkomu á Íslandsmiðum og í íslenskum höfnum.

Saga skipsins er rakin á sérstökum vef sem tileinkaður er rannsóknaskipinu (anton-dohrn.de) og er þar að finna aragrúa af upplýsingum svo sem afrit af dagbókum rannsóknastjóra.

Dohrnbankinn er mitt á milli Íslands og Grænlands.
Dohrnbankinn er mitt á milli Íslands og Grænlands. Kort/Landhelgisgæsla Íslands

Mikil fjárfesting

Árið 1952 – sjö árum eftir lok seinni heimsstyrjaldar – ákvað matvæla-, landbúnaðar- og skóglenduráðuneyti Vestur-Þýskalands að fjármagna smíði hafrannsóknaskips og kaup á öllum tilheyrandi rannsóknabúnaði. Hófst þá umfangsmikið skipulags- og hönnunarferli og að því loknu var smíðin boðin út. Að loknu útboðsferli varð Mützelfeldt-skipasmíðastöðin í Cuxhaven fyrir valinu og hófst smíði í byrjun maí 1953. Um var að ræða sérlega framsækið verkefni en mikill efnahagsvöxtur einkenndi þessi ár í Vestur-Þýskalandi enda var það á þessum árum sem hið mikla Wirtschaftswunder (efnahagsundur) var að hefjast.

Skipið fékk nafn sitt 16. agúst 1954 og var sjósett sama dag. Sem fyrr segir fékk skipið nafnið Anton Dohrn og var það í höfuðið á samnefndum líffræðingi sem opnaði fyrstu hafrannsóknastöð í heimi í Napólí 1872. Barnabarn Antons Dohrns, dr. Antonie Dohrn, skírði skipið.

Konrad Adenauer kanslari Sambandslýðveldisins Þýskalands ogTheodor Heuss forseti þess saman …
Konrad Adenauer kanslari Sambandslýðveldisins Þýskalands ogTheodor Heuss forseti þess saman á fundi í Bonn í spetember 1959. Ljósmynd/Bundesarchiv/Rolf Unterberg

Anton Dohrn fékkst síðan formlega afhentur við hátíðlega athöfn 10. febrúar 1955, eða fyrir nákvæmlega sjö áratugum á mánudag. Fyrir hönd Sambandslýðveldisins Þýskalands (Vestur-Þýskalands) tók Theodor Heuss forseti við skipinu. Sá var fyrsti forseti Vestur-Þýskalands og gegndi embætti til ársins 1959. Minnugir muna eflaust að hinn merki maður Konrad Adenauer var kanslari á þessum árum.

Hið þá glænýja hafrannsóknaskip Vestur-Þjóðverja var 999 brúttótonn og smíðað sem síðutogari, en um var að ræða fyrsta tveggja þilfara síðutogarann á heimsvísu. Í áhöfninni voru alls 30, þar af voru 15 sem sinntu vísindamönnum auk þess sem um borð voru skipslæknir, veðurfræðingur og veðurathugunarmaður.

Vel búið

Anton Dohrn var líklega eitt fullkomnasta rannsóknaskip síns tíma og var meðal annars um borð einstaklega rúmgott vinnsludekk sem gaf færi á að setja upp fjölbreyttar fiskvinnsluvélar til prófana. Gat lestin geymt um þúsund kör af fiski, en 18 rúmmetra frystigeymsla var um borð og gat hún kælt alveg niður í -25°C.

Eins og lesendur hafa kannski áttað sig á snerust hafrannsóknir á þessum tíma jafn mikið um rannsóknir á fiskveiðum og rannsóknum á hafinu sjálfu og lífríki þess. Vistkerfisnálgun og sjálfbær nýting auðlinda hafsins var jú ekki komin á það stig sem við þekkjum í dag. Tilgangur hafrannsóknaskipsins var því ekki síður að finna gjöful mið fyrir þýska fiskiskipaflotann en að rannsaka lífríki sjávar.

Anton Dohrn var eflaust tæknivæddasta hafrannsóknaskip síns tíma.
Anton Dohrn var eflaust tæknivæddasta hafrannsóknaskip síns tíma. Ljósmynd/Thünen-Institut: R. Hollnagel

Um borð voru einnig ýmiss konar rannsóknastofur, þar á meðal sjóskrárherbergi, hafrannsóknarstofa, líffræðirannsóknastofa, fiskirannsóknastofa, sýklarannsóknastofa, rannsóknarstofa fyrir veiðarfæri, bergmálsmælingastofa, myrkraherbergi, sædýrageymsla með fiskabúrum og vatnsmælingarás sem lá lóðrétt í gegnum skipið, en efri endi þess var í vélarrúmi fyrir vindur skipsins.

28 sinnum umhverfis hnöttinn

Anton Dohrn hélt í 164 rannsóknaleiðangra og var alls 3.727 daga á sjó. Í 8.157 skipti voru sýni sótt með trolli og 7.777 sinnum með nót. Á þeim tíma sem Anton Dohrn sinnti hafrannsóknum sigldi skipið meira en 600 þúsund sjómílur, rúmlega 1.110 þúsund kílómetra. Það er ígildi tæplega 28 ferða umhverfis jörðina.

Skipið er frægt fyrir tvær sérstakar uppgötvanir. Fyrst og fremst uppgötvun fyrrnefndra fiskimiða milli Íslands og Grænlands, sem fékk nafnið Dohrnbanki, árið 1955 og síðan uppgötvun neðansjávarfjallsins Anton Dohrn út af Suðureyjum (e. Hebrides) við Skotland.

Eftir 17 ár í þjónustu Vestur-Þýskalands sem hafrannsóknaskip var skipinu lagt sumarið 1972. Í desember það ár gekk það þó í endurnýjun lífdaganna sem eftirlitsskip með nafnið Meerkatze og sinnti slíku eftirlitsstarfi næstu árin, að mestu við Íslandsstrendur. 1986 var skipið síðan selt í brotajárn.

Íslandsmið hátíðlega kvödd

Greint var frá því í Morgunblaðinu í júlí 1977 að Meerkatze (áður Anton Dohrn) hefði í tilefni af síðustu ferð sinni frá Íslandi boðið merkum gestum um borð. Mættu skipherrar Landhelgisgæslunnar og forstjóri hennar sem og yfirhafnsögumaður Reykjavíkurhafnar.

„Ég hef alla tíð kunnað vel við mig á Íslandsmiðum, nema hvað í þorskastríðinu leið mér aldrei vel og þá gátum við aldrei leitað hafnar, það var erfiður tími. Hins vegar held ég að lífið hafi þá verið miklu erfiðara hjá fiskimönnunum. Þá – og nú segi ég sem betur fer – var okkur fyrirskipað af þýskum stjórnvöldum að aðstoða ekki togarana þegar íslensku varðskipin voru að ergja þá,“ var haft eftir Harald Paetow skipstjóra Meerkatze við tilefnið.

Morgunblaðið greindi frá brottför Meerkatze í júlí 1977.
Morgunblaðið greindi frá brottför Meerkatze í júlí 1977.

Greinin var fyrst birt í febrúarblaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 572,25 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 318,23 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 211,16 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,73 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Tjálfi SU 63 Þorskfisknet
Þorskur 5.418 kg
Samtals 5.418 kg
25.3.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.238 kg
Steinbítur 362 kg
Þorskur 223 kg
Keila 24 kg
Samtals 1.847 kg
25.3.25 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.048 kg
Þorskur 39 kg
Samtals 1.087 kg
25.3.25 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 1.358 kg
Þorskur 179 kg
Steinbítur 10 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 1.552 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 572,25 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 318,23 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 211,16 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,73 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Tjálfi SU 63 Þorskfisknet
Þorskur 5.418 kg
Samtals 5.418 kg
25.3.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.238 kg
Steinbítur 362 kg
Þorskur 223 kg
Keila 24 kg
Samtals 1.847 kg
25.3.25 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.048 kg
Þorskur 39 kg
Samtals 1.087 kg
25.3.25 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 1.358 kg
Þorskur 179 kg
Steinbítur 10 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 1.552 kg

Skoða allar landanir »