Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur farið fram á við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra að tillögur um hert skilyrði um eignarhald strandveiðibáta gildi ekki um báta sem eru í sameiginlegri eigu foreldra, barna, tengdabarna og barnabarna.
Grein er frá því í færslu á vef sambandsins að fulltrúar þess funduðu með ráðherra síðastliðinn föstudag í tilefni af drögum að reglugerð um strandveiðar sem birt var í samráðsgátt á dögunum.
„Færð voru rök fyrir kröfu LS um að eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á standveiðitímabilinu skuli eiga jafnan hlut á við aðra eigendur í lögaðilanum, í stað tillögu ráðuneytisins um meirihluta,“ segir í færslu LS
„Jafnframt var lögð áhersla á að tillögur um breytt eignarhald lögaðila myndi ekki gilda um báta í sameiginlegri eigu foreldra, barna, tengdabarna og barnabarna. Ekki síst þar sem krafa um hertar reglur tengdar eignarhaldi væru þeim hóp óviðkomandi.“
Skilyrðislaus viðbót við strandveiðar
Leitaði LS svara ráðherrans í tengslum við þau skilyrði sem sett eru í reglugerðardrögunum um að umsókn um strandveiðileyfi þurfi að hafa borist 15. apríl og leggur LS til að tiltaka ætti hvenær viðkomandi ætli að hefja veiðar, auk þess hver eða hverjir munu róa viðkomandi bát í sumar.
Þá ítrekuðu fulltrúar LS þörf á lagabreytingu til að 4.000 tonna makrílpottur til smábáta yrði boðinn upp fyrir þorsk á skiptimarkaði Fiskistofu.
Einnig ítrekaði LS áður framkomna ábendingu um að „undanfarin sjö fiskveiðiár hefði mismunur á útgefnum heimildum í þorski og afla verið 49 þúsund tonn að meðaltali sjöþúsund tonn á ári. Af þeim sökum ætti skilyrðislaust að bæta heimildum við strandveiðar og línuívilnum til að hámarka árlegar útgefnar heimildir í þorski með veiðum.“