Stjórn Samtaka atvinnulífsins geldur varhug við fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar við lagasetningu gagnvart íslenskum sjávarútvegi.
Stjórn SA sendi rétt í þessu frá sér ályktun þar sem meðal annars segir að raungerist áhyggjur samtakanna sé ljóst að breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað muni draga úr hagvexti og lífskjarasókn Íslendinga.
Í ályktuninni segir jafnframt að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði hafi verið gerðir í því trausti að aukin verðmætasköpun stæði undir þeim kostnaðarauka sem þeir fælu í sér fyrir atvinnulífið.
Því sé mikilvægt að huga sérstaklega að rekstrarskilyrðum atvinnulífs og einstakra atvinnugreina. Það sé sameiginlegt verkefni að tryggja hagfelld undirliggjandi skilyrði kjarasamninga.
Árétta samtökin að þau muni hér eftir sem hingað til standa sameinuð með hverjum þeim stjórnvöldum sem stuðla að aukinni verðmætasköpun á Íslandi en jafnframt í andstöðu við hver þau stjórnvöld sem veikja eða grafa undan verðmætasköpun hérlendis enda efnahagslegur styrkur forsenda öryggis þjóðarinnar.
Samtökin telja útlit fyrir að boðaðar breytingar hafi verulega neikvæð áhrif á íslenskan sjávarútveg en einnig tengdar og afleiddar greinar.
Hugmyndir um verulega hækkað veiðigjald muni draga úr alþjóðlegri samkeppnishæfni greinarinnar. Það valdi verulegum áhyggjum að kúvenda eigi rekstrarumhverfi sjávarútvegs á örfáum vikum, án þess að samráð, fagleg umræða og vandað áhrifamat geti legið til grundvallar breytingum á umgjörð hans á Íslandi, sem segir í ályktuninni.
Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir því að breytingar á umgjörð og starfsumhverfi sjávarútvegs á Íslandi, líkt og allra annarra atvinnugreina, verði unnar í nánu samráði við atvinnulífið, að þær byggi á staðreyndum og faglegri umræðu, skilningi á gangverki og eðli atvinnugreina, og mati á áhrifum á innlendan efnahag og samkeppnishæfni Íslands.
„Aðgerðir ríkisstjórnarinnar undanfarnar vikur sem og boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi sjávarútvegsins eru til þess fallnar að grafa undan hvoru tveggja, stöðugleika og samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins.
Telja samtökin það sérstaklega varhugavert í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir á mörkuðum um allan heim, yfirvofandi tollastríðs og óróa í alþjóðastjórnmálum.
Nú er tíminn til að Íslendingar snúi bökum saman, gæti sinna hagsmuna og verji lífskjör og verðmætasköpun.
Samtökin lýsa sig reiðubúin til samtals líkt og ávallt, en forsenda slíks samtals er að raunverulegur vilji sé til þess að taka tillit til sjónarmiða atvinnulífsins og einstakra atvinnugreina,“ segir í ályktun stjórnar SA.