Hildur: „Hér er mikið í húfi“

Hildur sagði mikið í húfi og mikilvægt að vanda til …
Hildur sagði mikið í húfi og mikilvægt að vanda til verka í málefnum veiðigjalda og sjávarútvegs. Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að hafa í huga að íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífi um land allt.

„Á undanförnum áratugum hefur verið gripið til ýmiss konar aðgerða til að gera íslenskan sjávarútveg sjálfbæran og arðbæran, þannig að óvíða í heiminum er sjávarútvegur rekinn á eins hagkvæman hátt.

Þessi eftirsóknarverða staða varð ekki til úr engu heldur byggir hún á rannsóknum og ákvörðunum út frá þeim. Allar breytingar á kerfinu sem til umræðu eru verða að skoðast með þetta til hliðsjónar,“ sagði Hildur í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag.

Aukin verðmætasköpun í íslensku hagkerfi

„Nú áðan stóðu hæstvirtur atvinnuvegaráðherra og hæstvirtur fjármála- og efnahagsráðherra fyrir kynningarfundi þar sem fyrirhugaðar breytingar á lögum um veiðigjald voru kynntar. Rétt er að staldra aðeins við hvað þar kom fram. Ég fullyrði að óumdeilt sé að framúrskarandi lífskjör íslensku þjóðarinnar byggi á samkeppnishæfni útflutningsstoða okkar, undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar; ferðaþjónustu, hugviti, framleiðslu á áli og sjávarútvegi,“ sagði Hildur í pontu.

„Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er skýrt kveðið á um að stefna skuli að aukinni verðmætasköpun í íslensku hagkerfi. Það ætti því að vera ríkisstjórninni kappsmál að styðja við samkeppnishæfni þessara undirstöðuatvinnugreina sem og annarra, fjölga störfum og þannig styðja við hagvöxt og lífskjör. Stundum þýðir það einfaldlega að ríkið þurfi að gera minna. Ríkisstjórnin ætlar hins vegar að gera meira, a.m.k. hvað snertir bæði ferðaþjónustu og sjávarútveg.

Frú forseti. Hér er mikið í húfi og mikilvægt að vanda til verka.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 575,09 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 321,65 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 210,93 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,14 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 2.508 kg
Þorskur 2.212 kg
Steinbítur 187 kg
Hlýri 17 kg
Keila 15 kg
Samtals 4.939 kg
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa
Karfi 14.173 kg
Ýsa 1.328 kg
Samtals 15.501 kg
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 13.086 kg
Þorskur 2.892 kg
Skarkoli 718 kg
Þykkvalúra 440 kg
Karfi 282 kg
Samtals 17.418 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 575,09 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 321,65 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 210,93 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,14 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 2.508 kg
Þorskur 2.212 kg
Steinbítur 187 kg
Hlýri 17 kg
Keila 15 kg
Samtals 4.939 kg
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa
Karfi 14.173 kg
Ýsa 1.328 kg
Samtals 15.501 kg
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 13.086 kg
Þorskur 2.892 kg
Skarkoli 718 kg
Þykkvalúra 440 kg
Karfi 282 kg
Samtals 17.418 kg

Skoða allar landanir »