Segja ríkisstjórnina tvöfalda veiðigjöld

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er sagður boða gjörbeytta nálgun í …
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er sagður boða gjörbeytta nálgun í veiðigjöldum. mbl.is/Eyþór

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fullyrða að breytingar á veiðigjaldi sem ríkisstjórnin mun kynna í dag verði til þess fallnar að fækka störfum og minnka tekjur ríkissjóðs af greininni. Þá sé grundvöllur áforma ríkisstjórnarinnar gagnrýndur fyrir að taka mið af allt öðrum aðstæðum, uppboðsmarkaði í Noregi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá samtökunum.

„Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar kl. 13 í dag og hyggst þar kynna hugmyndir að tvöföldun auðlindagjalds í sjávarútvegi. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja útfærslu gjaldtökunnar og áhrif hennar skaðlegri samfélaginu en flestar þær hugmyndir sem áður hafa komið fram,“ segir í yfirlýsingu SFS

„Auðlindagjaldtaka í sjávarútvegi hefur tekið allnokkrum breytingum frá því henni var fyrst komið á árið 2004, alla jafna í því augnamiði að hækka gjaldið. Í grundvallaratriðum hefur þó ávallt verið miðað við hlutfall af afkomu, þ.e. raunverulegar tekjur veiða að frádregnum raunverulegum gjöldum sem til falla við þær. Ríkið tekur nú þriðjung af þessari afkomu í veiðigjald.“

SFS segir ríkisstjórnina í dag ætla að kynna algerlega breytta nálgun.

„Þannig er nú fyrirhugað að blása upp tekjur af veiðum og miða þar við verð á norskum uppboðsmörkuðum fyrir uppsjávarfisk og íslenskum uppboðsmarkaði fyrir botnfisk. Hér á með öðrum orðum að miða við tekjur í sundurslitinni virðiskeðju, en ekki samþættri virðiskeðju, líkt og á við um íslenskan sjávarútveg. Verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs hefur einmitt hverfst um hina samþættu virðiskeðju og óumdeilt er að hún hefur skapað Íslendingum meiri verðmæti en nokkur önnur þjóð fær úr sínum sjávarútvegi. Þennan árangur ætlar ríkisstjórnin nú að tæta í sundur.“

Verri afkoma og færri störf

Í yfirlýsingunni er staðhæft að áhrifin verði „dapurleg“ og er bent á þær aðgerðir sem fyrirtækin munu þurfa að grípa til í þeim tilgangi að aðlagast nýjum veruleika.

„Tekjur veiða þurfa þá að aukast í takt við viðmið veiðigjaldsins, með þeim áhrifum að fiskvinnslur verða ósamkeppnishæfar. Eins og reyndin er í Noregi, mun fiskur þá í verulegum mæli flytjast óunninn úr landi til ríkisstyrktra fiskvinnsla í láglaunalöndum á borð við Pólland og Kína. Verðmætasköpun hér á landi verður þar með minni, störfum í fiskvinnslu fækkar stórum og afleiddar tekjur þjónustu og iðnaðar verða hverfandi. Nýsköpun og tækniframfarir frá landvinnslu sjávarafurða, sem hingað til hafa orðið sérstakur útflutningsatvinnuvegur, drabbast niður. Ríflegar tekjur sveitarfélaga frá sjávarútvegsfyrirtækjum og fólki sem þar starfar dragast verulega saman og ríkissjóður verður af skatttekjum frá landvinnslu og fyrirtækjum sem þjónusta hana.“

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS. Mbl/Árni Sæberg

SFS segir augljóst að samfélagið allt verða af tekjum vegna þessa og að greinin verði ekki lengur undirstaða á landsbyggðinni eins og verið hefur.

„Það má að lokum velta fyrir sér um stund vegferð ríkisstjórnar í sjávarútvegsmálum, sem lagði í upphafi vegferðar sinnar áherslu á verðmætasköpun. Á stuttum starfstíma er því miður djúpt á þeirri framtíðarsýn. Óhagkvæmar veiðar á að auka, kolefnisgjald á að hækka, veiðar og vinnsla verða sundur slitin með tvöfölduðu veiðigjaldi og eignarhald verður blýhúðað enn frekar umfram aðrar atvinnugreinar. Við þetta allt blandast síðan hættulegar aðstæður á erlendum mörkuðum með breyttri heimsmynd alþjóðaviðskipta og fyrirsjáanlegum efnahagslegum þrengingum á stærstu mörkuðum íslenskra sjávarafurða,“ segir í yfirlýsingunni sem undirrituð er af Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur framkvæmdatsjóra SFS.

„Það er þungur róður fram undan,“ segir að lokum.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 575,09 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 321,65 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 210,93 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,14 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 2.508 kg
Þorskur 2.212 kg
Steinbítur 187 kg
Hlýri 17 kg
Keila 15 kg
Samtals 4.939 kg
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa
Karfi 14.173 kg
Ýsa 1.328 kg
Samtals 15.501 kg
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 13.086 kg
Þorskur 2.892 kg
Skarkoli 718 kg
Þykkvalúra 440 kg
Karfi 282 kg
Samtals 17.418 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.3.25 575,09 kr/kg
Þorskur, slægður 25.3.25 690,32 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.3.25 321,65 kr/kg
Ýsa, slægð 25.3.25 225,56 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.3.25 210,93 kr/kg
Ufsi, slægður 25.3.25 245,78 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 25.3.25 287,14 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 2.508 kg
Þorskur 2.212 kg
Steinbítur 187 kg
Hlýri 17 kg
Keila 15 kg
Samtals 4.939 kg
25.3.25 Björg EA 7 Botnvarpa
Karfi 14.173 kg
Ýsa 1.328 kg
Samtals 15.501 kg
25.3.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 13.086 kg
Þorskur 2.892 kg
Skarkoli 718 kg
Þykkvalúra 440 kg
Karfi 282 kg
Samtals 17.418 kg

Skoða allar landanir »