„Svar ráðherra dregur ekki úr áhyggjum mínum“

Guðrún Hafsteinsdóttir spurði atvinnuvegaráðherra um boðaða hækkun veiðigjalda í óundirbúnum …
Guðrún Hafsteinsdóttir spurði atvinnuvegaráðherra um boðaða hækkun veiðigjalda í óundirbúnum fyrirspurnum. mbl.is/Anton Brink

Formaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á því að ekki liggi fyrir greiningar um hver nettóáhrif hækkun veiðigjalda muni verða á ríkissjóð. Enn fremur geti hækkunin ollið auknu atvinnuleysi og minni skatttekjum.

„Þessar breytingar virðast hafa verið unnar í flýti án samráðs við þau samfélög sem reiða sig einna helst á sjávarútveg og án greiningar á áhrifum á atvinnulíf í sjávarbyggðum eða aðkomu fólks sem hefur lífsviðurværi sitt af greininni,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.

Undarlegt að ekki sé lagt mat á afleidd áhrif á ríkissjóð

Guðrún sagði miklu máli skipta að það ríkti góð sátt um sjávarútveg í samfélaginu. Hún sagði enn fremur Sjálfstæðisflokkinn vera tilbúinn til að leita leiða til að betrumbæta reglur í umgjörð atvinnugreinarinnar.

Það verði aftur á móti að vera vandað til verka.

„Því vekur það undrun að ekkert mat hefur verið lagt á afleidd áhrif á ríkissjóð eða atvinnustig. Samt hefur ráðherra talað um sanngirni og réttlæti í þessu kerfi. Þetta kann að leiða af sér minni afleiddar tekjur og færri störf sem framkalla minni skatttekjur og aukið atvinnuleysi. Því vil ég spyrja ráðherra hæstvirtan, hvernig samræmist það vandaðri stjórnsýslu og réttlætissjónarmiðum að leggja fram slíkar breytingar án nauðsynlegs undirbúnings og samráð samráðs við þau samfélög og atvinnuvegi sem breytingarnar snerta hvað mest?“ spurði Guðrún.

Hefur ríkt „gap á milli þjóðar og útgerðar“

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði að það hefði ríkt „gap á milli þjóðar og útgerðar“ og ekki ríkt sátt um hvað „réttlátur arður“ þjóðarinnar af nýtingu auðlindarinnar ætti að vera.

„Hvað varðar greiningar þá var farið í þær. Það er að segja áhrifin á útgerðina á einstaka útgerðarfélög. Frítekjumarkið er hækkað og þetta er nú í samráðsgátt. Ég er sannfærð um það að það er enginn hér inni sem telur það hlutverk stjórnmálanna eða þeirrar sem hér stendur sem ráðherra málaflokksins að svara því ef viðbrögð útgerðarfyrirtækja verða að loka vinnslum úti á landi. Það er algerlega – og ég ætla bara að leyfa mér að segja það – galin framkvæmd í atvinnugrein sem malar gull,“ sagði Hanna Katrín.

Hún sagði enn fremur að áhrifin af hækkun veiðigjalda ráðast af því hvernig útgerðin bregst við hækkununum.

Hanna Katrín Friðriksson.
Hanna Katrín Friðriksson. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Áhætta með almannafé „til að slá pólitískar keilur“

„Já, virðulegi forseti, svar ráðherra dregur ekki úr áhyggjum mínum. Veruleg hækkun veiðigjalda getur haft veruleg áhrif á umsvif og afleidd umsvif í sjávarútvegi og þar með á aðrar tekjur ríkissjóðs, svo sem tekjuskatt, tryggingargjald og virðisaukaskatt,“ sagði Guðrún og bætti við að engin greining lægi fyrir á þessum áhrifum.

„Því spyr ég aftur: Telur ráðherra forsvaranlegt að leggja fram tillögur um stórkostlega auknar álögur á atvinnugrein án þess að fyrir liggi hver nettóáhrifin verði á ríkissjóð? Og ef ríkisstjórnin hefur enga hugmynd um þau áhrif, er þá ábyrgt að taka slíka áhættu með almannafé bara til að slá pólitískar keilur?“ spurði Guðrún.

Hanna Katrín sagði Guðrúnu vera full svartsýna og kvaðst vonast til þess að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki að „skipa sér í sveit með stórútgerðinni með það að það séu eðlileg viðbrögð við þessari eðlilegu leiðréttingu að láta það koma niður á fólkinu á landsbyggðinni og hóta lokun á vinnslu umfram það sem efni standa til.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.4.25 558,37 kr/kg
Þorskur, slægður 2.4.25 717,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.4.25 442,41 kr/kg
Ýsa, slægð 2.4.25 373,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.4.25 229,08 kr/kg
Ufsi, slægður 2.4.25 263,79 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 2.4.25 227,75 kr/kg

Fleiri tegundir »

2.4.25 Hafey SK 10 Grásleppunet
Grásleppa 1.371 kg
Þorskur 218 kg
Skarkoli 24 kg
Rauðmagi 6 kg
Ýsa 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.623 kg
2.4.25 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 3.830 kg
Ýsa 627 kg
Þorskur 566 kg
Sandkoli 77 kg
Skarkoli 56 kg
Grásleppa 24 kg
Samtals 5.180 kg
2.4.25 Jökla ST 200 Grásleppunet
Grásleppa 2.566 kg
Þorskur 364 kg
Steinbítur 19 kg
Skarkoli 19 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.4.25 558,37 kr/kg
Þorskur, slægður 2.4.25 717,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.4.25 442,41 kr/kg
Ýsa, slægð 2.4.25 373,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.4.25 229,08 kr/kg
Ufsi, slægður 2.4.25 263,79 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 2.4.25 227,75 kr/kg

Fleiri tegundir »

2.4.25 Hafey SK 10 Grásleppunet
Grásleppa 1.371 kg
Þorskur 218 kg
Skarkoli 24 kg
Rauðmagi 6 kg
Ýsa 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.623 kg
2.4.25 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 3.830 kg
Ýsa 627 kg
Þorskur 566 kg
Sandkoli 77 kg
Skarkoli 56 kg
Grásleppa 24 kg
Samtals 5.180 kg
2.4.25 Jökla ST 200 Grásleppunet
Grásleppa 2.566 kg
Þorskur 364 kg
Steinbítur 19 kg
Skarkoli 19 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »