Daníel tekur við forstjórastöðunni

Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Arctic Fish á …
Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Arctic Fish á Vestfjörðum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Arctic Fish hef­ur ráðið Daní­el Jak­obs­son sem for­stjóra frá og með 1. maí, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. Tek­ur hann við af Stein Ove Tveiten sem gegnt hef­ur starf­inu um ára­bil, en hann verður ráðgjafi hjá fyr­ir­tæk­inu til 1. júní.

Daní­el hef­ur gegnt stjórn­un­ar­stöðu hjá Arctic Fish frá ár­inu 2021 og veitt viðskiptaþróun fyr­ir­tæk­is­ins for­stöðu. Þá seg­ir í til­kynn­ing­unni að hann hafi á þess­um tíma „öðlast yf­ir­grips­mikla þekk­ingu á starf­semi og stefnu fyr­ir­tæk­is­ins. Leiðtoga­hæfi­leik­ar hans, sér­fræðiþekk­ing og djúp­ar ræt­ur í sam­fé­lag­inu á Vest­fjörðum gera hann vel til þess fall­inn að leiða fyr­ir­tækið í því vaxt­ar­skeiði sem fram und­an er hjá Arctic Fish.“

Arctic Fish stund­ar lax­eldi á Vest­fjörðum og hef­ur yfir að ráða sam­felldri virðiskeðju, allt frá klaki fisk­seiða til sölu afurða. Fé­lagið hef­ur leyfi til fram­leiðslu 29.800 tonna á tíu eld­isstaðsetn­ing­um í fimm fjörðum, þeim Pat­reks­firði, Tálknafirði, Arnar­f­irði, Dýraf­irði og Ísa­fjarðar­djúpi.

Seiðaeldi fé­lags­ins er í Tálknafirði, fóðurmiðstöð á Þing­eyri, skrif­stof­ur á Ísaf­irði og há­tæknilaxa­vinnsla í Bol­ung­ar­vík.

Arctic Fish rekur laxeldi á Vestfjörðum.
Arctic Fish rek­ur lax­eldi á Vest­fjörðum. Ljós­mynd/​Arctic Fish: Hauk­ur Sig­urðsson

Mark­mið um starfsþróun

„Við erum mjög ánægð með ráðningu Daní­els. Lax­eldi á Íslandi er enn ung at­vinnu­grein og lyk­ill­inn að áfram­hald­andi ár­angri velt­ur á framúrsk­ar­andi starf­semi sem bygg­ir á öfl­ugri dýra­vel­ferð, ábyrgri um­hverf­is­stefnu og traust­um fjár­hag ásamt ör­yggi og vel­ferð starfs­fólks. Daní­el hef­ur víðtæka þekk­ingu á allri starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og verður með starfs­stöð á Ísaf­irði,“ er haft eft­ir Øyvind Oa­land, stjórn­ar­for­manni Arctic Fish.

Þá er ákvörðun stjórn­ar Arctic Fish að ráða úr röðum starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins sögð end­ur­spegla mark­mið um að starfsþróun sé grunn­ur­inn að vexti fyr­ir­tæk­is­ins til framtíðar.

„Arctic Fish gegn­ir mik­il­vægu hlut­verki í at­vinnu­lífi Vest­fjarða við fram­leiðslu á heilsu­sam­legri fæðu, í sátt við sam­fé­lag og um­hverfi. Lax­eldi hef­ur þegar markverð áhrif á út­flutn­ings­tekj­ur Íslands og mik­il tæki­færi eru fram und­an. Ég er því mjög spennt­ur að halda áfram á þess­ari veg­ferð og þróa enn frek­ar sam­keppn­is­hæfa, fram­sækna og sjálf­bæra starf­semi með öfl­ug­um hópi starfs­fólks Arctic Fish,“ seg­ir Daní­el Jak­obs­son, nýr for­stjóri Arctic Fish, í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.7.25 487,32 kr/kg
Þorskur, slægður 9.7.25 504,21 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.7.25 438,34 kr/kg
Ýsa, slægð 9.7.25 392,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.7.25 191,44 kr/kg
Ufsi, slægður 9.7.25 163,20 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 9.7.25 268,22 kr/kg
Litli karfi 7.7.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.7.25 Kvikur EA 20 Handfæri
Þorskur 618 kg
Ufsi 267 kg
Karfi 23 kg
Samtals 908 kg
9.7.25 Ósk EA 12 Handfæri
Þorskur 757 kg
Ufsi 73 kg
Karfi 17 kg
Samtals 847 kg
9.7.25 Elín ÞH 82 Handfæri
Þorskur 859 kg
Ufsi 81 kg
Karfi 4 kg
Samtals 944 kg
9.7.25 Guðmundur Arnar EA 102 Handfæri
Þorskur 875 kg
Ufsi 26 kg
Ýsa 2 kg
Keila 1 kg
Karfi 1 kg
Samtals 905 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.7.25 487,32 kr/kg
Þorskur, slægður 9.7.25 504,21 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.7.25 438,34 kr/kg
Ýsa, slægð 9.7.25 392,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.7.25 191,44 kr/kg
Ufsi, slægður 9.7.25 163,20 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 9.7.25 268,22 kr/kg
Litli karfi 7.7.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.7.25 Kvikur EA 20 Handfæri
Þorskur 618 kg
Ufsi 267 kg
Karfi 23 kg
Samtals 908 kg
9.7.25 Ósk EA 12 Handfæri
Þorskur 757 kg
Ufsi 73 kg
Karfi 17 kg
Samtals 847 kg
9.7.25 Elín ÞH 82 Handfæri
Þorskur 859 kg
Ufsi 81 kg
Karfi 4 kg
Samtals 944 kg
9.7.25 Guðmundur Arnar EA 102 Handfæri
Þorskur 875 kg
Ufsi 26 kg
Ýsa 2 kg
Keila 1 kg
Karfi 1 kg
Samtals 905 kg

Skoða allar landanir »