Greiddu fimmtungi meira í veiðigjöld

Útgerðir landsins hafa greitt langtum meira í veiðigjöld áþessu ári …
Útgerðir landsins hafa greitt langtum meira í veiðigjöld áþessu ári en í fyrra. mbl.is/Gunnlaugur

Á fyrstu þrem­ur mánuðum árs­ins greiddu ís­lensk­ar út­gerðir 2,9 millj­arða króna í veiðigjöld og er það tæp­lega fimmt­ungi meira en á sama tíma­bili í fyrra, en hækk­un­ina má rekja til nú­ver­andi veiðigjalda­kerf­is þar sem álagn­ing tek­ur mið af af­komu veiðanna fyr­ir tveim­ur árum.

Allt síðasta ár greiddu út­gerðirn­ar 10,2 millj­arða í veiðigjald.

Sam­kvæmt gögn­um Fiski­stofu voru inn­heimt­ar 1.097 millj­ón­ir króna í veiðigjöld í mars síðastliðnum sem er þriðjungi meira en í sama mánuði í fyrra. Þá nam álagn­ing slíkra gjalda rúm­lega 971 millj­ón í fe­brú­ar sem var um 10% hærri upp­hæð en í sama mánuði í fyrra, en í janú­ar var upp­hæðin 14% hærri en árið 2024.

 Tóku breyt­ing­um um ára­mót

Um síðastliðin ára­mót tóku veiðigjöld tölu­verðum breyt­ing­um í sam­ræmi við út­reikn­inga á álagn­ingu þess­ara gjalda sem taka mið af af­komu veiða hverr­ar teg­und­ar fyr­ir tveim­ur árum, það er að segja árið 2023.

Hækkaði veiðigjald í krón­um á hvert í kíló á flest­ar teg­und­ir en lækkaði í til­felli ýsu, skötu­sels og skar­kola.

Álagn­ing á upp­sjáv­ar­teg­und­ir jókst veru­lega milli ára, hlut­falls­lega mest í til­felli mak­ríls sem hækkaði um 483% og endaði í 10,43 krón­um á kíló. Þá er veiðigjald á síld 10,09 krón­ur á þessu ári sem er 145% hærra en í fyrra. Auk þess hækkaði veiðigjald á loðnu um 86% í 7,29 krón­ur og kol­munna um 30% í 4,16 krón­ur.

Af fiski­teg­und­um hækkaði gjald mest í krón­um talið í til­felli grá­sleppu, úr engu í 11,31 krónu. Ekki hef­ur verið greitt veiðigjald af grá­sleppu áður og er ástæða þess að veiðarn­ar hafa áður fyrr ekki verið stýrðar með kvóta, en teg­und­in var kvóta­sett með laga­setn­ingu á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.6.25 541,13 kr/kg
Þorskur, slægður 16.6.25 556,55 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.6.25 518,52 kr/kg
Ýsa, slægð 16.6.25 542,78 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.6.25 218,09 kr/kg
Ufsi, slægður 16.6.25 274,90 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 16.6.25 197,55 kr/kg
Litli karfi 11.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.6.25 Sædís AK 121 Handfæri
Þorskur 774 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 792 kg
16.6.25 Geiri HU 69 Handfæri
Þorskur 789 kg
Ufsi 22 kg
Samtals 811 kg
16.6.25 Tangó SH 188 Handfæri
Þorskur 776 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 788 kg
16.6.25 Heppinn AK 31 Handfæri
Þorskur 773 kg
Ufsi 389 kg
Karfi 28 kg
Samtals 1.190 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.6.25 541,13 kr/kg
Þorskur, slægður 16.6.25 556,55 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.6.25 518,52 kr/kg
Ýsa, slægð 16.6.25 542,78 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.6.25 218,09 kr/kg
Ufsi, slægður 16.6.25 274,90 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 16.6.25 197,55 kr/kg
Litli karfi 11.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.6.25 Sædís AK 121 Handfæri
Þorskur 774 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 792 kg
16.6.25 Geiri HU 69 Handfæri
Þorskur 789 kg
Ufsi 22 kg
Samtals 811 kg
16.6.25 Tangó SH 188 Handfæri
Þorskur 776 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 788 kg
16.6.25 Heppinn AK 31 Handfæri
Þorskur 773 kg
Ufsi 389 kg
Karfi 28 kg
Samtals 1.190 kg

Skoða allar landanir »