„Við hjónin erum samrýmd og ágætlega fiskin,“ segir Ómar Marísson sjómaður í Ólafsvík. Hann gerir út strandveiðibátinn Rakel SH 700 og saman eru um borð Ómar og Ingibjörg Steinþórsdóttir kona hans. Þau hafa verið saman á strandveiðum í mörg ár og kunna því vel.
Nærri lætur að um 100 bátar séu gerðir út frá höfnum í Snæfellsbæ á standveiðunum sem hófust í vikubyrjun. Ekki þarf að fara nema 1-2 sjómílur út frá Ólafsvík til að vera á fengsælli slóð.
„Á þriðjudaginn vorum við þar sem heitir Grundarfjarðarbrún sem er 3-4 sjómílur héðan frá Ólafsvík. Fórum við út um hádegi og komum í land um kvöldmat með þau 774 kíló sem eru leyfilegur dagskammtur. Flestir sem voru á sjó þennan dag náðu skammtinum sínum alveg leikandi,“ segir Ómar. Hann sveiflaði krókskjaka sínum lipurlega þegar Alfons Finnsson, sjómaður og fréttaritari Morgunblaðsins í Ólafsvík, sem gerir út bátinn Svövu SH, renndi fram hjá þeim.
„Fiskurinn sem kemur svona snemma á vorin er einstaklega fallegur og verður því eftirsóttur. Meðalverðið á markaðnum er um 500 krónur á kílóið; ágæt upphæð sem dugar til þess að fólk geti haft strandveiðarnar sem þokkalegt viðurværi hluta ársins. Svo er líklegt að fiskurinn færi sig fjær þegar líður á sumarið og þá myndum við færa okkur líka. Hugsanlega róa þeir frá Bolungarvík, þó að ekkert sé ákveðið enn,“ segir Ómar Marísson sjómaður.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 30.5.25 | 481,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 30.5.25 | 644,09 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 30.5.25 | 569,07 kr/kg |
Ýsa, slægð | 30.5.25 | 466,97 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 30.5.25 | 172,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 30.5.25 | 270,32 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 30.5.25 | 200,25 kr/kg |
Litli karfi | 26.5.25 | 10,00 kr/kg |
31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 792 kg |
Rauðmagi | 6 kg |
Samtals | 798 kg |
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 793 kg |
Samtals | 793 kg |
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 774 kg |
Samtals | 774 kg |
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Steinbítur | 125 kg |
Þorskur | 52 kg |
Ýsa | 17 kg |
Samtals | 194 kg |
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Keila | 275 kg |
Karfi | 74 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Samtals | 373 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 30.5.25 | 481,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 30.5.25 | 644,09 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 30.5.25 | 569,07 kr/kg |
Ýsa, slægð | 30.5.25 | 466,97 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 30.5.25 | 172,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 30.5.25 | 270,32 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 30.5.25 | 200,25 kr/kg |
Litli karfi | 26.5.25 | 10,00 kr/kg |
31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 792 kg |
Rauðmagi | 6 kg |
Samtals | 798 kg |
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 793 kg |
Samtals | 793 kg |
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 774 kg |
Samtals | 774 kg |
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Steinbítur | 125 kg |
Þorskur | 52 kg |
Ýsa | 17 kg |
Samtals | 194 kg |
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Keila | 275 kg |
Karfi | 74 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Samtals | 373 kg |