Vilja takmarka erlent eignarhald í eldi

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir mikilvægt að eignarhald erlendra …
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir mikilvægt að eignarhald erlendra aðila í íslensku eldi verði takmarkað við 25% hlut. mbl.is/Eyþór

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hef­ur lagt til að er­lent eign­ar­hald í fé­lög­um sem stunda fisk­eldi á Íslandi verði tak­markað við 25%. Er mark­miðið sagt vera að tryggja að ís­lenskt sam­fé­lag njóti ávinn­ings­ins sem skap­ast af rekstr­in­um.

Þetta seg­ir Sig­urður Ingi Jó­hanns­son formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins í aðsendri grein í Morg­un­blaðinu í dag þar sem hann vek­ur at­hygli á þings­álykt­un­ar­til­lögu sem ligg­ur fyr­ir Alþingi.

„Lax­eldi í sjó hef­ur á und­an­förn­um árum vaxið hraðar en flest­ar aðrar at­vinnu­grein­ar á Íslandi. Þessi ört stækk­andi at­vinnu­grein nýt­ir stór­brotn­ar auðlind­ir okk­ar; hafsvæðið, hreina orku, vatnið og landið sjálft. Í ljósi þess að áður­nefnd­ar auðlind­ir eru tak­markaðar er mik­il­vægt að horfa til framtíðar með lang­tíma­hags­muni þjóðar­inn­ar að leiðarljósi þegar kem­ur að eign­ar­haldi og stjórn þessa geira,“ skrif­ar Sig­urður Ingi.

Laxeldi hefur vaxið ört hér á landi undanfarin ár.
Lax­eldi hef­ur vaxið ört hér á landi und­an­far­in ár. mbl.is/Þ​or­geir

Bend­ir hann á að stór hluti sjókví­eld­is­fyr­ir­tækja á Íslandi sé í eigu er­lendra aðila. „Er­lend fjár­fest­ing er mik­il­væg ís­lensku sam­fé­lagi, en það má ekki gleym­ast að yf­ir­ráð yfir auðlind­um og lyk­il­innviðum eiga að vera í hönd­um þjóðar­inn­ar sjálfr­ar.“

Þá sé mark­miðið að tryggja inn­lend yf­ir­ráð yfir lyk­i­lauðlind­um. „Með því styrkj­um við sjálfs­for­ræði Íslend­inga yfir at­vinnu­starf­semi sem bygg­ir á þjóðarauði, rétt eins og gert hef­ur verið í sjáv­ar­út­vegi um ára­bil. Við tryggj­um að ábat­inn verði nýtt­ur inn­an­lands til að efla byggðir, stuðla að ný­sköp­un, standa und­ir vax­andi kröf­um um sjálf­bærni og verja nátt­úru lands­ins.“

Vek­ur Sig­urður Ingi at­hygli á því að lög­gjöf sem myndi tak­marka er­lent eign­ar­hald eld­is­fyr­ir­tækja sé ekki eins­dæmi og bend­ir hann á sam­bæri­legt fyr­ir­komu­lag í Fær­eyj­um.

Mis­mun­andi dreif­ing eign­ar­halds

Þrjú stærstu fé­lög­in sem stunda sjókvía­eldi við Íslands­strend­ur eru Kald­vík á Aust­fjörðum og Arn­ar­lax og Arctic Fish á Vest­fjörðum. Fé­lög­in þrjú eru öll skráð í kaup­höll í gegn­um norsk eign­ar­halds­fé­lög.

Stærsti hlut­hafi Kald­vík­ur er Aust­ur Hold­ing AS sem fer með 55,29% hlut, en það fé­lag er í sam­eig­in­legri eigu norska fé­lags­ins Måsøval Eiendom sem á 70,7% hluta­fjár og Ísfé­lags­ins sem á 29,3% þess, þannig á Ífé­lagið 16% hlut í Kald­vík. Þá eru meðal stærstu hlut­hafa í Kald­vík út­gerðarfé­lög­in Skinn­ey-Þinga­nes sem fer með 11,87% og Eskja sem fer með 2,88%.

Að minnsta kosti 46% hluta­fé Kald­vík­ur er á hönd­um ís­lenskra fjár­festa.

Í til­felli Arn­ar­lax er meiri­hluti hluta­bréfa í eigu norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins SalM­ar sem fer með 52,48%. Þá er veru­leg­ur hluti fé­lags­ins í eigu er­lendra banka og sjóða en ein­hverj­ir ís­lensk­ir aðilar fara með hluti í gegn­um slíka aðila, t.a.m. í gegn­um J.P. Morg­an Bank Lux­em­bourg S.A. sem fer með 9,58%. Auk þess fer Íslands­banki með 7,54% hlut í fé­lag­inu.

Norski lax­eld­isris­inn Mowi er eig­andi 51,28% hlut­ar í Arctic Fish en Síld­ar­vinnsl­an er næst stærsti hlut­haf­inn með 34,19%. Síld­ar­vinnsl­an er einnig með hluti í gegn­um J.P. Morg­an SE sem er skráður fyr­ir 6,27%. Rest­in af hluta­fé fé­lags­ins er í eigu fjár­fest­inga­sjóða og banka en Lands­bank­inn og Íslands­banki fara sam­an­lagt með um 2,5% hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.6.25 541,08 kr/kg
Þorskur, slægður 16.6.25 556,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.6.25 518,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.6.25 542,78 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.6.25 217,69 kr/kg
Ufsi, slægður 16.6.25 274,90 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 16.6.25 197,78 kr/kg
Litli karfi 11.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.6.25 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 760 kg
Ufsi 103 kg
Samtals 863 kg
16.6.25 Elías Magnússon ÍS 9 Handfæri
Þorskur 675 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 689 kg
16.6.25 Norðri ÍS 122 Handfæri
Þorskur 768 kg
Ufsi 40 kg
Ýsa 10 kg
Karfi 2 kg
Samtals 820 kg
16.6.25 Júlía ÍS 163 Handfæri
Þorskur 766 kg
Samtals 766 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.6.25 541,08 kr/kg
Þorskur, slægður 16.6.25 556,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.6.25 518,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.6.25 542,78 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.6.25 217,69 kr/kg
Ufsi, slægður 16.6.25 274,90 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 16.6.25 197,78 kr/kg
Litli karfi 11.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.6.25 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 760 kg
Ufsi 103 kg
Samtals 863 kg
16.6.25 Elías Magnússon ÍS 9 Handfæri
Þorskur 675 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 689 kg
16.6.25 Norðri ÍS 122 Handfæri
Þorskur 768 kg
Ufsi 40 kg
Ýsa 10 kg
Karfi 2 kg
Samtals 820 kg
16.6.25 Júlía ÍS 163 Handfæri
Þorskur 766 kg
Samtals 766 kg

Skoða allar landanir »