Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) skiluðu í gærkvöld ítarlegri 167 síðna umsögn um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra. Fram kemur að SFS telur frumvarpið verulega gallað og varar við alvarlegum afleiðingum þess fyrir sjávarútveg, tengdar greinar, sveitarfélög og samfélagið í heild.
„Frumvarp sem boðar ríflega tvöföldun á veiðigjaldi, án fyrirvara, án greininga, án samráðs við hagaðila og án nokkurs áhrifamats er beinlínis hættulegt,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS í samtali við Morgunblaðið.
„Atvinnuveganefnd hefur þannig fengið frumvarp til umfjöllunar sem er haldið miklum ágöllum og það sem er jafnvel verra, þá er frumvarpið að koma allt of seint inn í þingið. Ég hygg að flestar innsendar umsagnir hafi að geyma gagnrýni á fyrirætlan frumvarpsins, í heild eða að hluta. Atvinnuveganefnd á því mikið og erfitt verk fyrir höndum.“
Ekki síst átelja SFS vinnubrögðin, ófullnægjandi undirbúning frumvarpsins, skort á gagnsæi og samráði. Minnt er á að umsagnarfrestur hafi verið of skammur, gögn afhent seint og sumum beiðnum um gögn var hafnað.
Athygli vekur að efast er um útreikninga atvinnuvegaráðherra, en mat SFS á fjárhagsáhrifum frumvarpsins bendir til þess að veiðigjaldið gæti meira en tvöfaldast, sérstaklega hvað varðar veiðigjald af þorski og ýsu. Bent er á að þegar gögn vanti eða aðgengi að þeim sé takmarkað verið slíkt mat óhjákvæmilega á reiki.
„En miðað við mat SFS virðist umræðan um „tvöföldun veiðigjalds“ hófstillt lýsing á því sem koma skal,“ segir í umsögninni.
Þá eru gerðar margháttaðar stjórnarskrárbundnar athugasemdir. SFS segir að frumvarpið brjóti gegn eignarréttarákvæðum stjórnarskrár með óhóflegri skattlagningu sem ekki byggist á raunverulegu aflaverðmæti.
Fyrirætlanir um að finna „rétt“ aflaverðmæti með útreikningi byggðum á verði annars konar afla á norskum markaði og jaðarverði á íslenskum fiskmörkuðum standist hvorki kröfur um jafnræði, meðalhóf né sannvirðisreglu skattaréttar, þegar sjávarútvegsfyrirtæki verða skattlögð fyrir verðmæti sem þau hafi ekki raunverulegan ráðstöfunarrétt yfir.
„SFS hafa með ítarlegri og málefnalegri umsögn hrakið allar forsendur frumvarpsins. Standi vilji stjórnvalda til þess að hækka veiðigjald, þá er hægt að gera það með mun skynsamlegri hætti. Við erum tilbúin í það samtal,“ segir Heiðrún Lind.
„Vafalaust er hin fullkomna auðlindagjaldtaka ekki til, en að óbreyttu mun frumvarp þetta, nái það fram að ganga, leiða til verulegra neikvæðra áhrifa á sjávarútveg, tengdar greinar í iðntækni og nýsköpun, sveitarfélög og samfélagið í heild. Skattspor sjávarútvegs verður að endingu minna, en ekki stærra.“
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.6.25 | 501,01 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.6.25 | 606,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.6.25 | 425,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.6.25 | 478,86 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.6.25 | 200,55 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.6.25 | 258,65 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 16.6.25 | 30,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.6.25 | 185,23 kr/kg |
Litli karfi | 18.6.25 | 10,00 kr/kg |
21.6.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 6.256 kg |
Hlýri | 283 kg |
Keila | 198 kg |
Samtals | 6.737 kg |
21.6.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína | |
---|---|
Ýsa | 443 kg |
Langa | 373 kg |
Þorskur | 265 kg |
Keila | 182 kg |
Hlýri | 154 kg |
Steinbítur | 139 kg |
Karfi | 10 kg |
Ufsi | 5 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.575 kg |
21.6.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Langa | 514 kg |
Ýsa | 424 kg |
Þorskur | 220 kg |
Hlýri | 157 kg |
Steinbítur | 97 kg |
Keila | 71 kg |
Karfi | 29 kg |
Ufsi | 10 kg |
Skarkoli | 5 kg |
Samtals | 1.527 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.6.25 | 501,01 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.6.25 | 606,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.6.25 | 425,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.6.25 | 478,86 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.6.25 | 200,55 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.6.25 | 258,65 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 16.6.25 | 30,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.6.25 | 185,23 kr/kg |
Litli karfi | 18.6.25 | 10,00 kr/kg |
21.6.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 6.256 kg |
Hlýri | 283 kg |
Keila | 198 kg |
Samtals | 6.737 kg |
21.6.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína | |
---|---|
Ýsa | 443 kg |
Langa | 373 kg |
Þorskur | 265 kg |
Keila | 182 kg |
Hlýri | 154 kg |
Steinbítur | 139 kg |
Karfi | 10 kg |
Ufsi | 5 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.575 kg |
21.6.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Langa | 514 kg |
Ýsa | 424 kg |
Þorskur | 220 kg |
Hlýri | 157 kg |
Steinbítur | 97 kg |
Keila | 71 kg |
Karfi | 29 kg |
Ufsi | 10 kg |
Skarkoli | 5 kg |
Samtals | 1.527 kg |