465 milljónum var úthlutað úr Fiskeldissjóði til 15 verkefna í sjö sveitarfélögum en alls bárust 30 umsóknir í sjóðinn. Þetta kemur fram í tilkynnningu Atvinnuvegaráðuneytis.
Af sveitarfélögunum sjö hlaut Fjarðarbyggð hæstu styrkupphæðina eða samtals 134.520.000 krónur en sem veitt var til þriggja verkefna. Hvert verkefni hlaut 44.840.000 krónur en um er að ræða styrk til fráveitunnar á Eskifirði, til endurbóta á Íslenska stríðsárasafninu og þá var veittur styrkur til viðgerða á Fjarðarbyggðarhöllinni.
Vesturbyggð hlaut 95.840.000 krónur til þriggja verkefna. Bygging Bíldudalsskóla hlaut 44.840.000 krónur, fráveitan á Bíldudal 7.760.000 krónur og fráveitan á Patreksfirði 7.110.000. Þá var veitt 36.130.000 krónum til skólalóðar Patreksskóla.
Ísafjarðarbær hlaut 76.660.000. Tvö verkefni voru styrkt en Slökkvistöð Ísafjarðarbæjar var styrkt um 44.840.000 og þá var 31.820.000 krónum veitt til upphitunar á aðalvelli Torfness.
Tvö verkefni á vegum Súðavíkur voru styrkt um samtals 61.270.000 krónur. 2.880.000 voru veittar til aðstöðu við heita potta og 25.660.000 krónur fóru til fjárfestingar á slökkvibifreið.
Múlaþing var styrkt um 44.840.000 krónur sem veittar voru til styrktar stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi.
43.250.000 krónur voru veittar til styrktar tveimur verkefnum í Bolungarvík. Annars vegar runnu 40.370.000 í uppbyggingu nýs íbúðahverfis við Tjarnarkamb í Bolungarvík og 2.880.000 krónur í göngustíga og aðkomu að „Sandinum“ við Tjarnarkamb.
Þá voru veittar 8.690.000 krónur til Strandabyggðar fyrir húsnæði og geislunarbúnað vatnsveitunnar.
Á vef Stjórnarráðsins segir um Fiskeldissjóð: “Fiskeldissjóður starfar á grundvelli 7. gr. laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og Fiskeldissjóð. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Stjórn sjóðsins starfar eftir starfsreglum sjóðsins.”