Gústaf Baldvinsson hættir hjá Samherja

Gústaf Baldvinsson lætur af störfum eftir þriggja áratuga starf hjá …
Gústaf Baldvinsson lætur af störfum eftir þriggja áratuga starf hjá Samherja. Ljósmynd/Samherji

Gúst­af Bald­vins­son hætt­ir hjá sam­stæðu Sam­herja í júní en hann hef­ur gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra Ice Fresh Sea­food frá stofn­un fé­lags­ins 2007. Þá hef­ur hann verið fram­kvæmda­stjóri Sea­gold í Bretlandi sem hann stofnaði ásamt Sam­herja árið 1996. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef Sam­herja.

„Það eru for­rétt­indi að hafa fengið að taka þátt í þeirri veg­ferð sem vöxt­ur Sam­herja hef­ur verið síðustu 30 árin,“ seg­ir Gúst­af. „Ég hef orðið þeirr­ar gæfu aðnjót­andi að vinna með framúrsk­ar­andi fólki á öll­um víg­stöðum og hverf ég þakk­lát­ur frá borði vit­andi að ég skil við fé­lagið í góðum hönd­um. Ég er sann­færður um það að með þann mannauð sem fyr­ir­tækið býr að verður framtíð þess áfram björt.“

Ice Fresh Sea­food sér um sölu á afurðum Sam­herja, Öldu Sea­food, Síld­ar­vinnsl­unn­ar og Vís­is en fé­lagið sel­ur ár­lega 80-100 þúsund tonn af afurðum að verðmæti 55-70 millj­arða króna. Hjá Ice Fresh Sea­food og dótt­ur- og sam­rekstr­ar­fé­lög­um starfa um 130 manns á níu starfs­stöðvum í fimm lönd­um.

Her­mann Stef­áns­son tek­ur við starfi fram­kvæmda­stjóra Ice Fresh Sea­food. Her­mann er sjáv­ar­út­vegs­fræðing­ur að mennt og hef­ur starfað við sjáv­ar­út­veg um ára­bil. Þá tek­ur Orri Gúst­afs­son við starfi fram­kvæmda­stjóra Sea­gold og verður staðsett­ur í Bretlandi. Orri er sjáv­ar­út­vegs­fræðing­ur með MBA í alþjóðaviðskipt­um en hann hef­ur starfað hjá Sam­herja og dótt­ur­fé­lög­um frá 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.6.25 443,50 kr/kg
Þorskur, slægður 25.6.25 358,36 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.6.25 356,55 kr/kg
Ýsa, slægð 25.6.25 310,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.6.25 191,31 kr/kg
Ufsi, slægður 25.6.25 240,61 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 25.6.25 320,30 kr/kg
Litli karfi 25.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.6.25 Pjakkur BA 345 Handfæri
Þorskur 723 kg
Ufsi 58 kg
Karfi 41 kg
Samtals 822 kg
26.6.25 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Þorskur 686 kg
Samtals 686 kg
26.6.25 Ásbjörn SF 123 Handfæri
Þorskur 854 kg
Ufsi 362 kg
Samtals 1.216 kg
26.6.25 Gyða BA 277 Handfæri
Þorskur 760 kg
Samtals 760 kg
26.6.25 Særós ST 207 Handfæri
Þorskur 344 kg
Samtals 344 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.6.25 443,50 kr/kg
Þorskur, slægður 25.6.25 358,36 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.6.25 356,55 kr/kg
Ýsa, slægð 25.6.25 310,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.6.25 191,31 kr/kg
Ufsi, slægður 25.6.25 240,61 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 25.6.25 320,30 kr/kg
Litli karfi 25.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.6.25 Pjakkur BA 345 Handfæri
Þorskur 723 kg
Ufsi 58 kg
Karfi 41 kg
Samtals 822 kg
26.6.25 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Þorskur 686 kg
Samtals 686 kg
26.6.25 Ásbjörn SF 123 Handfæri
Þorskur 854 kg
Ufsi 362 kg
Samtals 1.216 kg
26.6.25 Gyða BA 277 Handfæri
Þorskur 760 kg
Samtals 760 kg
26.6.25 Særós ST 207 Handfæri
Þorskur 344 kg
Samtals 344 kg

Skoða allar landanir »