Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hefur sagt af sér sem formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).
Guðmundur tilkynnti um afsögn sína á fundi framkvæmdaráðs SFS í gær en í tilkynningu frá honum segir að ástæðan sé sú að áherslur hans í starfi samtakanna njóti hvorki stuðnings Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur framkvæmdastjóra SFS né félaga hans í forystu samtakanna. Telur hann því best fyrir samtökin að hann segi sig úr forystu þeirra
„Ég tel það hlutverk samtakanna að fræða og upplýsa almenning og fulltrúa þeirra á hverjum tíma í stjórnmálum og opinberri stjórnsýslu um aðstæður til verðmætasköpunar í sjávarútvegi,“ segir hann. Guðmundur sinnti formannsembættinu aðeins í rúma tvo mánuði en hann hlaut kjör í það á aðalfundi samtakanna í byrjun apríl.
Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar er varaformaður og segir engan klofning kominn upp í SFS.
„Ég held að það megi ekki túlka þetta þannig, hann er ekkert að fara út úr samtökunum og verður áfram með okkur í þeim,“ segir Gunnþór.
Þá segist hann ekki átta sig á því í hverju áherslumunurinn sem Guðmundur lýsir felist.
„Ég hef ekki orðið var við neinn meginágreining innan samtakanna enda held ég að allir sem í samtökunum eru hafi sömu ástríðu og hag af því að íslenskur sjávarútvegur fái að blómstra.“
Aðspurður segist Gunnþór ekki halda að skoðanamunur í veiðigjaldamálinu liggi að baki afsögninni, Guðmundur hafi tjáð sig með svipuðum hætti og aðrir innan SFS um það.
Spurður hvort tímasetning afsagnarinnar sé óheppileg í ljósi þess að samtökin standi nú í miklu stappi við ríkisstjórn landsins vegna veiðigjaldafrumvarpsins segir Gunnþór engan tíma vera góðan „þegar gott fólk treystir sér ekki lengur til að vera með þér“, en að þetta komi ekki til með að breyta öllu í þeirri umræðu sem nú er í gangi. „Það er í þessum samtökum eins og öllu. Það kemur maður í manns stað.“