Gunnþór tekur við formennsku í SFS

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gunnþór Ingva­son, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unn­ar hf., er nýr formaður Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, SFS. Hann mun gegna for­mensku fram að næsta aðal­fundi. Gunnþór var áður vara­formaður sam­tak­anna. 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá SFS.

Harma að leiðir skilji á þess­um tíma­punkti

Stjórn SFS fundaði í dag. Á fund­in­um var samþykkt ný skip­an í embætti og stjórn­arein­ing­ar sam­tak­anna í sam­ræmi við samþykkt­ir.

Eins og fyrr seg­ir tek­ur Gunnþór við for­mennsku. Þá var samþykkt að Ægir Páll Friðberts­son, rit­ari SFS og for­stjóri Ice­land Sea­food ehf., taki við vara­for­mennsku og að Anna Guðmunds­dótt­ir, fjár­mála­stjóri Gjög­urs hf., taki við embætti rit­ara sam­tak­anna.

Einnig var samþykkt að Daði Hjálm­ars­son, fram­kvæmda­stjóri KG fisk­verk­un­ar hf., taki sæti í fram­kvæmdaráði sam­tak­anna. Stjórn samþykkti einnig kjör Friðriks Friðriks­son­ar, fram­kvæmda­stjóra mannauðssviðs Brims hf., í stjórn sam­tak­anna.

„Stjórn Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi þakk­ar Guðmundi Kristjáns­syni, frá­far­andi for­manni, fyr­ir sam­starfið í for­ystu­sveit sam­tak­anna. Fram­lag Guðmund­ar til sjáv­ar­út­vegs og sam­tak­anna í gegn­um tíðina er mikið. Stjórn­in harm­ar að leiðir skilji á þess­um tíma­punkti en Guðmund­ur verður áfram þátt­tak­andi í starfi sam­tak­anna sem öfl­ug­ur fé­lags­maður

Sam­taka­mátt­ur og samstaða um starfs­skil­yrði ís­lensks sjáv­ar­út­vegs er og verður leiðin fram á við til auk­inn­ar verðmæta­sköp­un­ar. Stjórn sam­tak­anna ósk­ar Guðmundi velfarnaðar fram veg­inn við áfram­hald­andi upp­bygg­ingu sjáv­ar­út­vegs á Íslandi,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 505,33 kr/kg
Þorskur, slægður 19.6.25 541,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.6.25 475,80 kr/kg
Ýsa, slægð 19.6.25 478,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.6.25 209,36 kr/kg
Ufsi, slægður 19.6.25 278,44 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 19.6.25 239,35 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.6.25 Álborg SH 111 Handfæri
Þorskur 477 kg
Ufsi 312 kg
Karfi 30 kg
Samtals 819 kg
19.6.25 Sæbjörg EA 184 Þorskfisknet
Þorskur 1.381 kg
Ufsi 621 kg
Samtals 2.002 kg
19.6.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 3.313 kg
Ufsi 771 kg
Samtals 4.084 kg
19.6.25 Fengur EA 207 Handfæri
Þorskur 796 kg
Ufsi 161 kg
Samtals 957 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 505,33 kr/kg
Þorskur, slægður 19.6.25 541,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.6.25 475,80 kr/kg
Ýsa, slægð 19.6.25 478,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.6.25 209,36 kr/kg
Ufsi, slægður 19.6.25 278,44 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 19.6.25 239,35 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.6.25 Álborg SH 111 Handfæri
Þorskur 477 kg
Ufsi 312 kg
Karfi 30 kg
Samtals 819 kg
19.6.25 Sæbjörg EA 184 Þorskfisknet
Þorskur 1.381 kg
Ufsi 621 kg
Samtals 2.002 kg
19.6.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 3.313 kg
Ufsi 771 kg
Samtals 4.084 kg
19.6.25 Fengur EA 207 Handfæri
Þorskur 796 kg
Ufsi 161 kg
Samtals 957 kg

Skoða allar landanir »