Ef skoðaður er meðalaldur fimmtíu stærstu sjávarúvegsfyrirtækja landsins út frá kennitölu er hann 37 ár. Nú eru 29 ár síðan kvótakerfið varð til með frjálsa framsali.
Þetta segir okkur að nær öll fyrirtækin sem fá úthlutað kvóta núna voru til fyrir daga kvótakerfisins. Það eru átján fyrirtæki af þessum fimmtíu sem eru með skráða kennitölu eftir að framsalið var leift en voru til í annarri mynd fyrir þann tíma. Fyrirtæki eins og ÚA, Loðnuvinnslan, Samherji, Kristinn Jón og fleiri.
Hvar er kvótanum landað
Ef skoðað er staðsetning bolfiskkvótans eftir höfnum sem skipin eru skráð þá sést það á mynd 2. Það væri áhugavert að bera saman hvar vægi annarra atvinnugreina er á landinu og bera saman við sjávarútveginn. Það verður að bíða betri tíma.