Xpeng G6 til höfuðs Tesla Model Y

Xpeng G6 er framleiddur í fimm litum. Greinilegt er að …
Xpeng G6 er framleiddur í fimm litum. Greinilegt er að hönnunin tók mið af vindmótstöðuútreikningum. Ljósmynd/Xpeng

Ég var sann­færður strax í upp­hafi reynsluakst­urs í Hollandi, um leið og ég sett­ist áreynslu­laust í hvítt og þægi­legt leður­lík­isklætt bíl­stjóra­sætið á Xpeng G6-bíln­um, snjalla millistærðar­jepp­lingn­um eins og fram­leiðend­ur vilja kalla hann (e. Ultra Smart Coupe SUV). Vellíðan streymdi um mig. Mýkt­in, áferðin og ljóst og ein­falt innra byrði bíls­ins tók þétt utan um mig. Ég gat vart beðið eft­ir að aka hljóðlega af stað, en kitla pedal­ann dug­lega þegar hraðbraut­in tæki við. Þar myndu hest­öfl­in 476 skila mér á 4,1 sek­úndu upp í 100 km hraða á klukku­stund.

Xpeng er splunku­nýtt kín­verskt raf­bíla­merki á ís­lenska markaðnum og eru nú þegar fimm ein­tök af lúx­usút­gáf­unni G9 kom­in til lands­ins. G6 er vænt­an­leg­ur til lands­ins í haust en hon­um er ætlað að keppa beint við hinn gríðar­vin­sæla Tesla Model Y, sölu­hæsta bíl á Íslandi í fyrra.

Mikilvægustu upplýsingarnar fyrir bílstjórann eru sjáanlegar beint fyrir framan hann …
Mik­il­væg­ustu upp­lýs­ing­arn­ar fyr­ir bíl­stjór­ann eru sjá­an­leg­ar beint fyr­ir fram­an hann á 10,2 tommu skjá. Öll önn­ur virkni er aðgengi­leg á 15 tommu snerti­skjá í miðjunni. Inn­rétt­ing­in er stíl­hrein og smart. Ljós­mynd/​Xpeng

Viðbót­ar­lúx­us og geim­skipa­út­sýni

Auk þess að prófa G6 úti í Hollandi fékk ég að hafa G9-bíl­inn að láni í nokkra daga hér heima á dög­un­um. Hann er bú­inn ýms­um viðbót­ar­lúx­us eins og sex teg­und­um af nuddi í öll­um sæt­um, hita og kulda í fram- og aft­ur­sæt­um, auka­skjá fyr­ir fram­an farþega í farþega­sæti, þar sem er m.a. hægt að njóta allra helstu lystisemda in­ter­nets­ins, og fleira.

Í báðum bíl­um er stórt glerþak sem gef­ur sér­lega góða birtu og út­sýni, svo­kallað geim­skipa­út­sýni (e. Stars­hip View).

Það sem heill­ar mig við Xpeng, ásamt því hversu vel hann fjaðrar, hve hljóðlát­ur hann er með lítið veg­hljóð, og þýður í akstri, er fum­laust aðgengið. Það er gott að fara inn og út úr hon­um, út­sýni er prýðilegt og höfuð- og fótapláss sömu­leiðis. Maður þarf ekki að ræsa bíl­inn eða slökkva á hon­um, held­ur næg­ir að stíga bara inn og út. Bíll­inn start­ar sér sjálf­ur og slekk­ur á sér.

Það er einnig eft­ir­tekt­ar­vert hve ein­fald­ur hann er að inn­an og nær öll­um aðgerðum hef­ur verið komið fyr­ir í snerti­skjá.

Skottið er hæfilega rúmgott eins og sést á myndinni. Þar …
Skottið er hæfi­lega rúm­gott eins og sést á mynd­inni. Þar má koma fyr­ir um 570 lítr­um af öllu mögu­legu. Ljós­mynd/​Xpeng

Áhersla á tækni

Hljóðkerfið er einnig sér á báti og tækn­in sömu­leiðis. Í hönn­un­ar­for­send­um Xpeng hef­ur höfuðáhersl­an frá byrj­un verið lögð á tölvu­tækn­ina og sam­kvæmt umboðsaðilum bíls­ins hér heima, Unu, bregðast fram­leiðend­ur hratt og vel við ábend­ing­um með nýj­um upp­færsl­um. Upp­lýs­inga­skjár­inn er því frek­ar auðskilj­an­leg­ur og auðvelt er að finna helstu aðgerðir og nýta sér þær. Þá má einnig leita hjálp­ar hjá spjall­menni bíls­ins með því að segja ein­fald­lega „hæ, Xpeng“.

Bíl­inn legg­ur sér sjálf­ur í stæði. Auðvitað hef­ur það verið við lýði lengi í nýj­um bíl­um en fíd­us­inn er út­færður á nokkuð ein­fald­an hátt í Xpeng. Í fyrstu er maður pínu óör­ugg­ur að sleppa hönd­um af stýri og fæti af pedala en traustið vex fljótt.

29 skynj­ar­ar bíls­ins, þar af 12 mynda­vél­ar, auka enn á traust, ör­yggi og áreiðan­leika í akstri.

Ungt fé­lag í örum vexti

Xpeng var stofnað í Guangzhou í Kína fyr­ir tíu árum. Á alþjóðavísu starfa hjá fé­lag­inu 15 þúsund manns og 14% þeirra sinna rann­sókn­um og þróun, sam­kvæmt þeirri kynn­ingu á bíln­um sem ég fékk í upp­sveit­um Amster­dam þar sem Xpeng er með evr­ópsku höfuðstöðvar sín­ar.

Þó að fáir þekki bíl­inn á Íslandi er hann nú þegar kom­inn á göt­urn­ar víða um heim og út­breiðslan er hröð, árið 2023 seldi Xpeng 150.000 bíla. Á þessu ári verður Xpeng fá­an­leg­ur í á öðrum tug Evr­ópu­landa. Einnig er hann kom­inn til Nýja-Sjá­lands og víða í Asíu sem dæmi.

Auk þess að vera í eigu kín­verskra stofn­enda er hinn gam­al­gróni þýski bílarisi Volkswagen meðal hlut­hafa auk net­versl­un­ar­ris­ans kín­verska Ali­baba og leigu­bíla­fyr­ir­tæk­is­ins DiDi.

Það er gam­an að minn­ast á það hér að grunn­hug­mynda­fræði Xpeng geng­ur út á hreyf­an­leika, það að kom­ast frá ein­um stað á ann­an, sama hvaða tæki er notað til þess. Þannig var til sýn­is í Hollandi flygildi nokk­urt, eins kon­ar dróni, sem maður sit­ur í og svíf­ur um í. Einnig feng­um við að sjá hrein­ræktaðan flug­bíl, sem bæði get­ur ekið og flogið, og einnig eins kon­ar móður­skip/​bíl með flygildi inn­an­borðs; Xpeng AeroHT.

Hleðslupallurinn rúmar tvo síma og tvö drykkjarmál.
Hleðslupall­ur­inn rúm­ar tvo síma og tvö drykkjar­mál. Ljós­mynd/​Xpeng

Leggja sig meðan hlaðið er

Raf­hlaða Xpeng G6 er með allt að 570 km drægni sem er dágott og verður gam­an að sjá hvernig hún á eft­ir að standa sig í ís­lensk­um aðstæðum. Aðeins 20 mín­út­ur tek­ur að hlaða frá 10-80%. Það er vissu­lega aðeins lengri tími en tek­ur að dæla bens­íni á tank­inn en þá er alltaf hægt að leggja sæt­in í lá­rétta stell­ingu og fá sér smá lúr á meðan hlaðið er.

Hægt er að sækja smá­for­rit sem ger­ir lyk­il í raun óþarf­an. Með for­rit­inu má opna og loka glugg­um, dyr­um og hleðslu­hólfi. Þá sýn­ir appið alltaf staðsetn­ingu öku­tæk­is­ins.

Á kynn­ing­unni í Hollandi var sér­stök áhersla lögð á að hægt væri að stinga ýmsu í sam­band við bíl­inn, eins og til dæm­is stórri veit­inga­húsakaffi­vél, raf­hjól­um og -skút­um, eða öðrum bíl­um.

Skottið er viðun­andi að stærð og bíll­inn get­ur togað 1.500 kg. Fyr­ir öku­mann og farþega er þráðlaus hleðslupall­ur fyr­ir farsíma á mjög hent­ug­um stað í miðjunni en þar er einnig pláss fyr­ir tvo drykki og stórt geymslu­hólf er á milli sæta.

Akst­urs­upp­lif­un­in af Xpeng var mjög góð eins og glögg­lega má sjá af lestri þess­ar­ar grein­ar. Það verður því reglu­lega spenn­andi að sjá hvernig Xpeng geng­ur að fóta sig í sam­keppn­inni eft­ir að sala fer á fullt skrið í vet­ur.

Öflugt hljóðkerfið heitir X-opera Sound System. Boðið er upp á …
Öflugt hljóðkerfið heit­ir X-opera Sound System. Boðið er upp á Apple CarPlay- og Android Auto-teng­ing­ar. Ljós­mynd/​Xpeng

Xpeng G6

Drægni allt að 570 km

Hleðsla úr 10% í 80% á 20 mín.

476 hest­öfl

Frá 0-100 km/​klst. á 4,1 sek.

Drátt­ar­geta: 1.500 kg

Lengd: 4.753 mm

Breidd: 1.920 mm

Hæð: 1.650 mm

Þyngd: 2.025 kg

Af­hend­ing: Haust 2024

Umboð: Una

Verð frá 5,99 millj. með styrk

Grein­in birt­ist upp­haf­lega í Bíla­blaði Morg­un­blaðsins 16. júlí. Bíla­blaðið kem­ur út þriðja þriðju­dag hvers mánaðar. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: