Polestar 3 mun kosta um 13 milljónir

Polestar 3 mun kosta tæpar 13 milljónir á Íslandi.
Polestar 3 mun kosta tæpar 13 milljónir á Íslandi.

Po­lest­ar 3 jepp­inn er fyrsti jeppi sænska fram­leiðand­ans Po­lest­ar. Fyr­ir­tækið var stofnað af Volvo Cars og Geely Hold­ing til að fram­leiða hágæða raf­bíla og nýt­ur nýt­ur tækni­legr­ar og verk­fræðilegr­ar sam­virkni við Volvo Cars. 

Po­lest­ar 3 er 100% raf­magns­bíl og er hönn­un­in inn­blás­in af Po­lest­ar Precept. Um er að ræða fimm sæta jeppa með afl allt að 380 kW og 910 Nm.

Thom­as Ingenl­ath for­stjóri Po­lest­ar seg­ir að Po­lest­ar 3 sé kraft­mik­ill raf­magn­sjeppi sem höfði til skiln­ing­ar­vit­anna með sér­stakri skandína­vískri hönn­un og framúrsk­ar­andi akst­ur­seig­in­leik­um. 

„Með hon­um tök­um við stórt skref í fram­leiðslunni þegar Po­lest­ar hef­ur fram­leiðslu í Banda­ríkj­un­um. Við erum stolt og spennt að stækka vöru­línu okk­ar sam­fara hröðum vexti,“ seg­ir Ingenl­ath. 

Sætin eru úr umhvefisvænu leðri.
Sæt­in eru úr um­hvef­i­s­vænu leðri.

Po­lest­ar 3 er kynnt­ur með nýrri loftafl­fræðilegri hönn­un þar sem mik­il áhersla hef­ur verið lögð á að halda jeppa­ein­kenn­um, kraft­mikl­um og sterk­leg­um. Hönn­un­in hef­ur verið unn­in með ná­kvæmri en áhrifa­ríkri loftafl­fræðilegri fínstill­ingu. Sem meðal ann­ars bygg­ir á vind­skeið að fram­an sem er inn­byggð í vél­ar­hlíf­ina, vind­skeið sem er inn­byggð í aft­ur­hlera og loftspöðum að aft­an.

„Þessi bíll hef­ur verið hannaður sem Po­lest­ar frá upp­hafi og stát­ar af nýj­um hönn­un­ar­eig­in­leik­um, eins og tví­blaða aðalljós­um, SmartZo­ne og vind­skeið að fram­an,“ seg­ir Ingenl­ath. 

Að inn­an er Po­lest­ar 3 stíl­hreinn og fal­leg­ur og þess gætt að efniviður­inn inn­an í bíln­um sé um­hverf­i­s­vænn og með sjálf­bær­an upp­runa án þess að það komi niður á út­lit­inu á bíln­um. Í bíln­um er til dæm­is líf­rænt dýra­vel­ferðar­vottað leður sem kall­ast MicroTech.  

Po­lest­ar 3 kem­ur á markað fjór­hjóla­drif­inn með tveim­ur raf­mó­tor­um með áherslu á aukna afl­stýr­ingu til aft­ur­hjól­anna. Bíll­inn skil­ar sam­tals 360 kW og 840 Nm togi. Með val­frjáls­um Per­formance pakka er heild­araflið 380 kW og 910 Nm. 

„Mark­mið okk­ar var að bjóða upp á af­köst og ná­kvæmni sem skil­greina alla Po­lest­ar bíla, án þess að skerða þæg­indi dag­legs akst­urs,“ seg­ir Joakim Ryd­holm, yf­ir­verk­fræðing­ur und­ir­vagns­hönn­un­ar Po­lest­ar og bæt­ir við:

„Til að gera þetta notuðum við nýja íhluti eins og aðlag­andi loft­fjöðrun til að móta „Po­lest­ar til­finn­ing­una“ fyr­ir þessa teg­und bíla.“ 

Po­lest­ar 3 er fyrsti bíll­inn sem kynnt­ur er á nýj­um raf­magns und­ir­vagni sem þróaður er af og deilt með Volvo Cars. Áætlað er að fram­leiðsla fyr­ir fyrstu markaði hefj­ist í verk­smiðju Volvo Cars í Chengdu, Kína, frá miðju ári 2023, en fyrstu af­hend­ing­ar eru vænt­an­leg­ar á fjórða árs­fjórðungi 2023. 

Po­lest­ar hef­ur fram­leitt tvo raf­bíla með áherslu á af­burða akst­ur­seig­in­leika. Po­lest­ar 1 var fram­leidd­ur á ár­un­um 2019 til 2021 í tak­mörkuðu magni. Po­lest­ar 2 er fyrsti fjölda­fram­leiddi raf­bíll fyr­ir­tæk­is­ins. Frá ár­inu 2022 áætl­ar Po­lest­ar að setja á markað einn nýj­an raf­bíl á ári og byrj­ar með Po­lest­ar 3 árið 2022. Gert er ráð fyr­ir að Po­lest­ar 4, minni raf­magn­sjeppi með af­burða akst­ur­seig­in­leika, komi í kjöl­farið árið 2023.

Árið 2024 er ráðgert að setja á markað Po­lest­ar 5, raf­knú­inn 4 dyra GT bíl, með af­burða akst­ur­seig­in­leika sem er afurð Po­lest­ar Precept. 

mbl.is