Frekar en að frumsýna bílinn um helgi hefur Hekla ákveðið að fara þá leið að leggja heila viku undir frumsýningu nýs Mitsubishi Outlander PHEV. Eflaust veitir ekki af að dreifa viðburðinum á nokkra daga enda hefur Outlander notið mikilla vinsælda á íslenska markaðinum og eflaust margir sem vilja berja jeppann augum.
„Það hefur nú þegar verið gríðarlegur áhugi og fjöldi fólks hefur lagt inn forpantanir. Það verður því mjög spennandi að frumsýna hann í vikunni,“ segir Hlynur Hjartarson, vörustjóri Mitsubishi á Íslandi, í tilkynningu frá umboðinu. Hann segir jafnframt að þessi fjórða kynslóð Mitsubishi Outlander marki nýtt tímabil fyrir einn vinsælasta tengiltvinnbílinn á Íslandi, en nýja kynslóðin á að bjóða upp á bætta aksturseiginleika, aukin þægindi og sérlega gott fjórhjóladrif.
Meðal þess sem einkennir nýjan Outlander er að hann er búinn nýju og endurbættu drifkerfi sem býður upp á meiri drægni á rafmagninu einu saman. Hröðunin er mikil, meiri mýkt í akstri, og akstursupplifunin enn hljóðlátari en áður.
Hekla segir drægni tengiltvinnbílsins allt að 86 km á hreinu rafmagni (skv. WLTP-staðli), en meðaleldsneytiseyðsla er aðeins 0,8 l/100 km og koltvísýringslosunin 18 g/km.
Í tilkynningu segir enn fremur að bifreiðin bjóði upp á fjórhjóladrif með „Super-All Wheel Control“-kerfi (S-AWC) sem veiti einstakt grip og stöðugleika við allar aðstæður, hvort heldur sem er í borgarakstri eða á meira krefjandi vegum.
Nýja Outlander PHEV fylgir átta ára eða 160.000 km ábyrgð sem endurnýjast um á 12 mánaða fresti með árlegu viðhaldi og nær yfir alla helstu íhluti bifreiðarinnar.
Mun Outlander koma í tvenns konar útgáfum: Annars vegar er „Invite“-útgáfan sem kemur með 18" álfelgum, innréttingu úr leðurlíki, rafdrifnu ökumannssæti, stafrænu mælaborði og Yamaha premium-hljóðkerfi með átta hátölurum. Hins vegar er „Instyle“-útgáfan sem hefur það umfram Invita að vera með leðurinnréttingu, 20" álfelgur, 12 hátalara hljóðkerfi frá Yamaha, stóra rafdrifna sóllúgu og margt fleira.
Outlander kostar frá 8.690.000 kr. og er hægt að bóka tíma í reynsluakstur á www.hekla.is sem og hjá umboðsaðilum Heklu á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ.
Myndunum sem fylgja þessari grein hefur verið breytt þar eð upphaflegu myndirnar sýndu bandarísku útgáfu Outlander.