Dacia Bigster mættur hjá BL

Dacia Bigster stendur undir nafni, og er bæði stór og …
Dacia Bigster stendur undir nafni, og er bæði stór og stæðilegur. Ljósmynd/BL

Fjór­hjóla­drifni jepp­ling­ur­inn Dacia Big­ster verður frum­sýnd­ur á laug­ar­dag hjá BL við Sæv­ar­höfða, en í til­kynn­ingu seg­ir að Big­ster sé „stærsti bíll­inn í flóru rúm­enska bíla­fram­leiðand­ans“ og „hannaður með skörp­um út­lín­um sem gefa til kynna gott rými fyr­ir fólk og far­ang­ur, og getu hans til þægi­legra ferðalaga utan al­fara­leiða“.

Big­ster er fá­an­leg­ur í nokkr­um mis­mun­andi út­búnaðargerðum og mun kosta frá 6,6 til 7,2 millj­ón­ir króna. „Essential“- og „Extreme“-út­gáf­urn­ar eru með fjór­hjóla­drifi og 130 hestafla 1.199 cc bens­ín­vél með „mildu tvinn­kerfi“ og bein­skipt­ingu, og eyða að jafnaði 6 l á hverja 100 km. „Jour­ney“ fæst með fram­drifi, sjálf­skipt­ingu og 155 hestafla 1.793 cc bens­ín­vél með tvinn­kerfi og 4,6 l eyðslu á hundraðið, en „Extreme“ fæst líka með sömu vél.

Eins og nafnið gef­ur til kynna er Big­ster verk­leg bif­reið og eru 21,9 cm und­ir lægsta punkt og pláss fyr­ir 667 lítra af far­angri. Af staðal­búnaði má nefna 10“ marg­miðlun­ar-snerti­skjá, raf­drifna og upp­hitaða hliðarspegla, lang­boga á þaki, sjálf­virk aðalljós og hita bæði í fram­sæt­um og stýri.

Frum­sýn­ing­in á laug­ar­dag stend­ur yfir frá klukk­an 12 til 16.

Skarpar og stílhreinar línur einkenna farþegarýmið.
Skarp­ar og stíl­hrein­ar lín­ur ein­kenna farþega­rýmið. Ljós­mynd/​BL
mbl.is