Á þriðja hundrað manns koma að þjónustudegi Toyota

Mynd úr safni af þjónustudeginum 2016. Þá er handagangur í …
Mynd úr safni af þjónustudeginum 2016. Þá er handagangur í öskjunni og njóta íþróttafélögin góðs af. Eggert Jóhannesson

Árleg­ur þjón­ustu­dag­ur Toyota er hald­inn í dag, laug­ar­dag, og nær viðburður­inn um nán­ast allt land.

Venju sam­kvæmt stend­ur eig­end­um Toyota- og Lex­us­bif­reiða til boða að fá sum­arþvott og „glaðning í bíl­inn“ eins og það er orðað í til­kynn­ingu. Að vanda verður einnig boðið upp á grill og skemmt­un.

At­hygli vek­ur að á þriðja hundrað manns koma að fram­kvæmd þjón­ustu­dags­ins en fé­lags­menn íþrótta­fé­laga hring­inn í kring­um landið taka þátt og létta und­ir með starfs­fólki og þjón­ustuaðilum Toyota.

Munu fé­lag­ar Stjörn­unn­ar, ÍR, KA, Körf­unn­ar á Sel­fossi og Spyrn­is á Eg­ils­stöðum leggja sitt af mörk­um og standa vakt­ina hjá Toyota í Kaup­túni í Garðabæ, Toyota á Njarðarbraut í Reykja­nes­bæ, Toyota á Foss­nesi á Sel­fossi, Toyota á Bald­urs­nesi á Ak­ur­eyri, Bif­reiðaverk­stæði Reykja­vík­ur á Bæj­ar­flöt í Reykja­vík og Bíla­verk­stæði Aust­ur­lands á Miðási á Eg­ils­stöðum, á milli kl. 11 og 15.

mbl.is