Allt annað mál að þvo bíla í dag

Jökull segir vandann við snertilausan þvott vera að nota þarf …
Jökull segir vandann við snertilausan þvott vera að nota þarf efni með mjög hátt pH-gildi til að hreinsa óhreinindi af bílnum og á endanum fer lakkið að láta á sjá. Morgunblaðið/Eggert

Jök­ull Helga­son hjá Classic Detail á Bílds­höfða 16 seg­ir að upp­haf­lega hafi það vakað fyr­ir stofn­end­um versl­un­ar­inn­ar að starf­rækja eins kon­ar „nör­da­búð“ fyr­ir bíla­áhuga­fólk: „Við sáum fyr­ir okk­ur að þjón­usta fólk sem er eins og við, með ólækn­andi bíla­dellu og ástríðu fyr­ir því að halda bíl­un­um sín­um hrein­um og fal­leg­um. Fljót­lega varð þó ljóst að viðskipta­vina­hóp­ur­inn var mjög fjöl­breytt­ur og ætli það megi ekki segja að í dag séu um 30% þeirra sem koma í versl­un­ina til okk­ar með bíla­dellu á háu stigi en hin 70% ósköp venju­legt fólk sem finnst gam­an að hafa bíl­inn sinn glans­andi fín­an.“

Til að gera langa sögu stutta býður Classic Detail í dag upp á um 900 vör­u­núm­er og má þar finna all­ar mögu­leg­ar gerðir af sáp­um, bóni og auka­hlut­um fyr­ir bílaþrif­in.

Jök­ull, sem sjálf­ur seg­ist hafa verið með mikla bíla­dellu í fjóra ára­tugi, seg­ist vita fátt betra en að nostra við óhreina bíla svo að þeir sýni sín­ar bestu hliðar. „Skemmti­leg­ast af öllu er að taka bíl sem er all­ur orðinn rispaður og matt­ur og taka hann í gegn á nokkr­um dög­um, og lag­færa gamla lakkið svo að það verði eins og nýtt og jafn­vel betra.“

Þeir hjá Classic Detail eru dug­leg­ir að deila ástríðu sinni og halda reglu­lega nám­skeið þar sem farið er djúpt ofan í þrif og stand­setn­ingu bif­reiða, en nám­skeiðin eru hald­in eft­ir forskrift banda­ríska fyr­ir­tæk­is­ins Chemical Guys: „Við erum tveir hjá fyr­ir­tæk­inu sem höf­um fengið kennslu­rétt­indi hjá þeim og kallaði það á að fara þris­var sinn­um út til þeirra á nám­skeið. Á þess­um nám­skeiðum höf­um við þann hátt­inn á að fá til okk­ar ný­leg­an bíl sem hef­ur látið á sjá og för­um í gegn­um það með sex nem­end­um – al­gjör­um byrj­end­um – að þrífa bíl­inn og lag­færa skemmd­ir. Oft eru þetta bíla­leigu­bíl­ar sem verða fyr­ir val­inu, jafn­an í kring­um þriggja ára ald­ur­inn en lakkið á þeim er iðulega eins og á sjö eða átta ára göml­um bíl,“ út­skýr­ir Jök­ull. „Í lok nám­skeiðsins, sem tek­ur einn dag, eru þess­ir bíl­ar orðnir um það bil 93 til 97% rispu­frí­ir og skín­andi hrein­ir.“

Lakkið orðið mun viðkvæm­ara

Ef­laust er leit­un að þeim les­anda sem þykir ekki gam­an að halda af stað á nýþvegn­um og bónuðum bíl, og mörg­um þykir það mjög gef­andi að þrífa heim­il­is­bíl­inn í hólf og gólf. Jök­ull bend­ir þó á að það sé að vissu leyti vanda­sam­ara að þvo og bóna bíla í dag en fyr­ir 30 eða 40 árum og auðvelt að skemma lakkið ef ekki er farið var­lega. „Lökk­in hafa breyst svo mikið og í stað olíulakka og tveggja þátta epoxý-lakka eru kom­in akríl- og vatns­baseruð lökk sem eru viðkvæm­ari en þau gömlu. Maður gat kom­ist upp með það fyr­ir nokkr­um ára­tug­um að ein­fald­lega heim­sækja næsta þvottapl­an og skrúbba bíl­inn með skít­ug­um þvottakústi en í dag er ekki hægt að gera það í mörg skipti áður en fer að sjá á lakk­inu,“ út­skýr­ir hann. „Lökk­in sem fram­leiðend­ur nota í dag eru mýkri og fyr­ir vikið viðkvæm­ari fyr­ir risp­um, auk þess að þau þola illa hreinsi­efni með hátt pH-gildi.“

Jök­ull seg­ir að því miður leysi það ekki vand­ann að fara með bíl­inn í snerti­lausa þvotta­stöð. „Það ætti að nota sáp­ur með pH-gildi í kring­um 7 til 7,5 en hjá snerti­lausu stöðvun­um þarf að nota hreinsi­efni með mjög hátt pH-gildi – yf­ir­leitt frá 11 og upp í 14 – ef það á að tak­ast að fjar­lægja óhrein­indi af bif­reiðinni. Slíkt fer ekki vel með bíl­inn og hætt er við því að plast­flet­ir gráni fljótt og lakkið matt­ist.“

Góðu frétt­irn­ar eru þær að ef bif­reiðin hef­ur verið þrif­in ræki­lega og bónuð með bestu fá­an­legu efn­um sem minnka viðloðun óhrein­inda má oft hreinsa öku­tækið hratt og vel með háþrýsti­dælu. „En það á bara við yfir sum­ar­mánuðina og á vet­urna er ekki annað í boði en að snerta bíl­inn til að ná hon­um hrein­um.“

Tvær föt­ur eru al­gjör nauðsyn

Lyk­ill­inn að því að þrífa bíl­inn vel og fara vel með lakkið er, að sögn Jök­uls, að nota svo­kallað tveggja fötu kerfi og brúka þvotta­hanska úr örtrefjaþráðum. Jök­ull seg­ir það af og frá að not­ast við svamp og eru örtrefja-þvotta­hansk­arn­ir miklu betri því að ef þeir fanga agn­ir sem geta rispað lakkið leita agn­irn­ar inn í örtrefjarn­ar. „En ef það sama ger­ist þegar þvegið er með svampi sit­ur kornið yst á svamp­in­um og verður það fyrsta sem snert­ir lakkið.“

Að nota tvær föt­ur er ekki flókið: Í ann­arri föt­unni er sápu­blandað vatn og í hinni hreint vatn sem notað er til að skola þvotta­hansk­ann inni á milli, en neðst í þeirri fötu er rist sem þvotta­hansk­an­um er nuddað utan í til að losa úr hon­um óhrein­indi og agn­ir.

Þá þarf að nota réttu efn­in og seg­ir Jök­ull gott að velja sáp­ur sem hafa nokkuð sleipa áferð en það veit­ir aukna vörn gegn risp­um. „Og ef menn hafa t.d. látið setja kera­mík­húð á bíl­inn þá skipt­ir máli að fylgja vand­lega ráðlegg­ing­um þess sem sá um verkið því að nota þarf réttu efn­in til að skaða ekki húðina. Það ger­ist allt of oft að við fáum til okk­ar viðskipta­vini sem hafa aug­ljós­lega ekki fengið rétt­ar upp­lýs­ing­ar, eða ekki fylgst nógu vel með því sem þeim var sagt.“

Það er hluti af vorverkunum að gera bílinn hreinan fyrir …
Það er hluti af vor­verk­un­um að gera bíl­inn hrein­an fyr­ir sum­arið. Nota þarf réttu efn­in og áhöld­in og fara var­lega með lakkið. Morg­un­blaðið/​Golli

Byrjað á dekkj­um og felg­um

Hvernig á svo að þrífa bíl­inn rétt og vel? Jök­ull minn­ir á að forðast eigi að þvo bíla í beinu sól­ar­ljósi, og að þeir megi ekki vera of heit­ir, en ann­ars ganga þrif­in ein­fald­lega út á það að vinna skref fyr­ir skref, og best er að byrja á að þrífa dekk­in og felg­urn­ar. Á dekk­in eru notuð sér­stök hreinsi­efni, og oft þarf að nota járnút­fell­andi efni á felg­urn­ar til að losa um bremsuryk. „Það er áríðandi að láta þessi efni ekki þorna á felg­un­um en þau eru lát­in sitja í 4-5 mín­út­ur og ef það dug­ar ekki til má nudda óhrein­ind­in í burtu með bursta.“

Því næst eru hreinsi­efn­in skoluð af dekkj­un­um og felg­un­um og þá er röðin kom­in að tjöru­hreins­in­um. Jök­ull seg­ir um tvo styrk­leika af tjöru­hreinsi að velja og ef sterk­ari út­gáf­an er notuð þarf að gæta að því að hún kom­ist ekki í tæri við ljós­in á bíln­um því hún get­ur skemmt plastið og valdið því að örfín­ar sprung­ur mynd­ast.

Vit­an­lega má ekki láta tjöru­hreins­inn sitja of lengi á lakk­inu, og þegar hann hef­ur verið skolaður af er komið að því að sápuþvo bíl­inn.

Jök­ull minn­ir á að nota tvær föt­ur og örtrefja­hanska, en hann seg­ir það líka geta ein­faldað þrif­in mjög að nota háþrýsti­dælu, pumpu­brúsa eða ein­fald­lega garðslöngu með þar til gerðum auka­búnaði til að úða sápu­froðu yfir bíl­inn.

Bíll­inn er svo handþveg­inn í nokkr­um köfl­um og byrjað efst, og þvotta­hanskinn hreinsaður vel í skolvatns-föt­unni og und­inn áður en hon­um er stungið í sápu­vatns-föt­una og þvott­in­um haldið áfram. „Þegar þvott­in­um er lokið ætti sápu­vatnið enn að vera bleikt eða blátt – það er að segja í upp­runa­leg­um lit sáp­unn­ar – en skolvatnið að vera svo skít­ugt að ekki sjá­ist til botns í föt­unni,“ seg­ir Jök­ull.

Sáp­an er síðan skoluð af bíln­um og koma þá nokkr­ir mögu­leik­ar til greina. Það má þurrka bíl­inn með örtrefja­hand­klæði, blása hann þurr­an ef menn eiga til þess rétt­an búnað, eða bera strax á bónefni sem mega fara á blautt lakkið. Jök­ull seg­ir eina vin­sæl­ustu vör­una hjá Classic Detail ein­mitt vera fljót­andi bón sem er ein­fald­lega sprautað yfir bíl­inn strax og sáp­an hef­ur verið skoluð af hon­um, og síðan strokið yfir með örtrefja­hand­klæði og sit­ur þá glans­andi bón­húðin eft­ir.

Jök­ull mæl­ir líka ein­dregið með því að bera vatns­fæl­andi efni á rúðurn­ar enda er það mik­il­vægt ör­yggis­atriði og stór­bæt­ir út­sýni úr bíln­um þegar rign­ir. Síðasta skrefið er að bera gljáa á dekk­in, og hér skipt­ir máli að hafa þrifið gúmmíið vel í upp­hafi svo að gljá­inn bind­ist vel við dekk­in og end­ist lengi.

Leðrið þarf nær­ingu

Svo má ekki gleyma að þrífa bíl­inn að inn­an, þó að yf­ir­leitt megi gera það sjaldn­ar. Jök­ull bend­ir á að Classic Detail selji hreins­andi efni frá japönsk­um fram­leiðanda sem bera megi á vínil, plast og gúmí, og meira að segja á snerti­skjána en þá er efn­inu úðað í örtrefja­klút og ekki beint á skjá­inn. „Og þó að það sé gefið upp að nota megi þetta efni á leður þá er alltaf gott – ef það eru al­vöru leður­sæti í bíln­um – að bera á þau sér­stök leður­hreinsi­efni af og til. Þessi efni næra leðrið og halda því mjúku og sterku og hjálpa til við að halda sprung­um í skefj­um.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: