BL við Sævarhöfða efnir til sumarhátíðar fyrir alla fjölskylduna á laugardag og sýnir þar m.a. nýjan alrafmagnaðan Hongqi EHS7 Premium sportjeppa.
Á hátíðinni verður boðið upp á léttar veitingar, andlitsmálun o.fl., en auk spennandi nýrra bíla verða ferðavörur og græjur til sýnis.
Hongqi EHS7 er með 619 hestafla rafmótor, 85 kWst rafhlöðu og hefur allt að 460 km drægni. Krafturinn er slíkur að sportjeppinn fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 3,9 sekúndum og þá er dráttargetan eitt og hálft tonn.
Af búnaði má nefna varmadælu sem ætti að nýtast vel yfir vetrartímann, lyklalaust aðgengi með raddstýringu, tveggja svæða sjálfvirka miðstöð, birtutengdan baksýnisspegil, leðurklætt og hitað stýri, og rafdrifin framsæti með nuddi, loftkælingu og hita.
Fullkomið aðstoðar- og öryggiskerfi hugsar vel um ökumann, farþega og vegfarendur, og þá er bifreiðin búin hljóm- og afþreyingarkerfi með 19 hátölurum og 15,5 tommu snertiskjá.
Þegar styrkur úr Orkusjóði hefur verið dreginn frá kostar Hongqi EHS7 Premium 6.990.000 kr.
Sumarhátíðin á laugardag stendur yfir frá 12 til 16.