Dagsferðir frá London

Fjölda fagurra staða er að finna utan höfuðborgarinnar London.
Fjölda fagurra staða er að finna utan höfuðborgarinnar London. mynd/NigelBrown

London er heill­andi borg og ekki að undra að hún sé ein vin­sæl­asta borg heims. Slíkt er fram­boðið af afþrey­ingu að sum­um gæti þótt nóg um ef þá hægt er að fá nóg af höfuðborg­inni. Það get­ur þó verið ágæt­istilbreyt­ing að kynn­ast öðrum lands­hlut­um án þess að leggj­ast í lang­ferð því heill­andi staði er að finna ör­stutt frá London og því til­valið að skella sér í dags­ferð. 

Bright­on 

Ferðatími: 60 mín­út­ur frá Victoria Stati­on 

Verð frá 5.500,- fram og til baka 

Bright­on er fal­leg­ur strand­bær sem ligg­ur við suður­strönd Eng­lands. Helsta kenni­leiti bæj­ar­ins er Bright­on Pier en þar er að finna skemmtig­arð sem er við hæfi allra ald­urs­hópa ásamt veit­inga­stöðum og versl­un­um. Bright­on hef­ur þó upp á miklu meira að bjóða en skemmtig­arðinn og strönd­ina og þess má geta að sam­kvæmt niður­stöðu úr könn­un sem fyr­ir­tækið Mo­vehub gerði er bær­inn mesti „hip­ster“-bær heims. Sem sagt bær fyr­ir þá sem vilja eitt­hvað óhefðbundið og öðru­vísi.  

Spenn­andi litl­ar búðir er að finna víða ásamt girni­leg­um veit­inga­stöðum svo sem The Set Restaurant sem staðsett­ur er á Art­ist Resi­dence-hót­el­inu eða gæða sér á sjáv­ar­rétt­um á strönd­inni á Riddle & Finns eða girni­leg­um ham­borg­ur­um og ís­köld­um kokteil­um á MEATliquor.

Brighton Pier er helsta kennileiti Brighton.
Bright­on Pier er helsta kenni­leiti Bright­on. mynd/​wiki­media

Oxford 

Ferðatími: 75 mín­út­ur frá London Padd­ingt­on 

Verð frá 5.600,- fram og til baka 

Ein fal­leg­asta borg Eng­lands og sú sem dýr­ast er að búa í utan London. Marg­ir segja að frá Oxford komi allt það sem breskt er líkt og hinn eini sanni breski hreim­ur, te og skons­ur og að sjálf­sögðu hin víðfrægi Oxford-há­skóli sem er elsti há­skól­inn í ensku­mæl­andi landi og hef­ur alið af sér fræga ein­stak­linga eins og Stephen Hawk­ing, Marga­ret Thatcher og J.R.R Tolkien.  

Á há­skóla­svæðinu er að finna Uni­versity Church og St. Mary the Virg­in en þar er hægt að ganga upp 127 þrep og virða fyr­ir sér út­sýnið sem er stór­kost­legt. Borg­in er heill­andi og minn­ir um margt á sviðsmynd­ir úr Harry Potter, það er því upp­lagt að rölta um borg­ina í ró­leg­heit­um og skella sér svo jafn­vel í há­deg­is­mat á The Eagle and Child en þar sat ein­mitt J.R.R Tolkien ásamt vin­um sín­um stund­um sam­an á þeim tíma sem hann skrifaði Lord of the Rings.  Síðdeg­is er svo upp­lagt að skella sér í báts­ferð og skála í Pimms. 

Háskólinn í Oxford er afskaplega fallegur.
Há­skól­inn í Oxford er af­skap­lega fal­leg­ur. Ljós­mynd/​Wikipedia.org

  

Cambridge 

Ferðatimi: 1 klst. 15 mín frá London Li­verpool street 

Verð frá 4.900,- 

Cambridge er einnig þekkt fyr­ir að vera há­skóla­borg líkt og Oxford og stát­ar af næ­stelsta há­skól­an­um í ensku­mæl­andi landi. Ein besta leiðin til að njóta borg­ar­inn­ar er siglandi líkt og í Oxford. 

Borg­in er fög­ur og al­veg sér­stak­lega fal­leg á haust­in þegar lauf­in falla af trján­um og því ekki úr vegi að rölta um grasag­arð borg­ar­inn­ar þar sem marg­ar fagr­ar plönt­ur er að finna ásamt sjarmer­andi kaffi­húsiEft­ir ljúfa göngu­ferð er, sam­kvæmt áreiðan­leg­um heim­ild­um, skylda að koma við á Fitzbill­ies og gæða sér á ljúfu sæt­meti og þá er sér­stak­lega mælt með Chel­sea-snúðunum.   

Á su­mar­kvöld­um er skemmti­legt að borða á veit­ingastaðnum Six en hann er með fal­legt út­sýni yfir borg­ina og fyr­ir þá sem vilja al­vörumat­ar­upp­lif­un er ómiss­andi að fara á Mids­um­mer hou­se en verið viss um að bóka borð í tæka tíð þar sem veit­ingastaður­inn er oft­ar en ekki full­bókaður langt fram í tím­ann. 

Segja mætti að Cambridge væri Feneyjar Bretlands.
Segja mætti að Cambridge væri Fen­eyj­ar Bret­lands. mynd/​wiki­media

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert