„Vorum ekki lengi að sannfærast.“

Kristín Ásta, ein vinkvennanna sem standa fyrir verkefninu.
Kristín Ásta, ein vinkvennanna sem standa fyrir verkefninu. Ljósmynd/Aðsend

Bræður henn­ar þrír búa al­farið í Nepal og ann­ast að mestu rekst­ur hót­els­ins Tiger Tops. Að sögn Krist­ín­ar Ástu Krist­ins­dótt­ur, einn­ar af vin­kon­un­um, er hug­mynd­in af ferðalag­inu kom­in frá eig­in­manni einn­ar úr hópn­um. ,,Svo ég noti hans orðalag þá sagði hann að það væri galið að við fær­um ekki vin­kon­urn­ar sam­an til Nepal þar sem Anna Tara þekkti landið eins og lóf­ann á sér. Við vor­um ekki lengi að sann­fær­ast enda frá­bær hug­mynd. Svo þegar við vor­um bún­ar að skipu­leggja ferðina, með til­liti til hvað okk­ur langaði að sjá og gera, langaði okk­ur að stækka ferðina ef svo má að orði kom­ast. Hvað gæt­um við lagt af mörk­um þar sem við vær­um að fara heim­sækja eitt fá­tæk­asta land í Asíu.” Vin­kon­urn­ar ræddu við Önnu Töru um hvar neyðina væri helst að finna í henn­ar nærum­hverfi og komust að því að rekst­ur á grunn­skóla sem Fjóla Ósk Bend­er, móðir Önnu Töru, ásamt fleira góðu fólki setti á lagg­irn­ar fyr­ir fá­tæk­ustu börn­in í héraðinu stæðu henni og bræðrum henn­ar næst. ,,For­eldr­ar Önnu Töru eru bæði lát­in en þau ráku hót­elið Tiger Tops sem er við Chitw­an-þjóðgarðinn. Skól­inn var stofnaður 1996 og hef­ur verið starf­rækt­ur óslitið síðan en hann er al­farið rek­inn á styrkj­um, það var því aldrei nein spurn­ing um að þetta væri verk­efnið okk­ar,” seg­ir Krist­ín Ásta og bæt­ir við að nú­ver­andi nem­end­ur séu sex­tíu börn á aldr­in­um 5-8 ára. Börn­un­um sé séð fyr­ir skóla­föt­um, skóla­gögn­um, mat og lækn­isþjón­ustu. 

Börnin í skólanum eru á aldrinum 5- 8 ára.
Börn­in í skól­an­um eru á aldr­in­um 5- 8 ára. Ljós­mynd/​Aðsend

Í skól­an­um er einnig bóka­safn sem er öll­um opið um helg­ar þegar ekki er skólastarf, græn­meti er ræktað í garðinum sem börn­in borða og for­eldr­ar skóla­barn­anna leggja fram nokk­urra klukku­stunda vinnu í mánuði við rækt­un­ina og greiða þannig fyr­ir skóla­gjöld. ,,Skól­inn held­ur einnig úti sér­sjóði sem styður út­skrifuð börn til frek­ara náms ann­ars staðar, tæp­lega 200 börn hafa nú þegar út­skrif­ast og fengið fjár­hagsaðstoð frá skól­an­um.”

Viðbrögðin ekki látið á sér standa

,,Með hugs­un­ina, að margt smátt geri eitt stórt, að leiðarljósi skellt­um við í Face­book færslu og vonaðist ég til að okk­ar nán­asta fólk myndi leggja inn smá­ræði. Svo hafa miklu fleiri en nán­ustu aðstand­end­ur okk­ar lagt sitt af mörk­um og það finnst mér svo fal­legt. „Þörf­in er víða og ég er virki­lega þakk­lát þeim sem hafa stutt þetta verk­efni, það er ekki sjálfsagt,” seg­ir Krist­ín Ásta. Ýmis fyr­ir­tæki hafa einnig lagt sitt af mörk­um og má bú­ast við að vin­kon­urn­ar fari klifjaðar út af ým­is­kon­ar vör­um sem koma að góðum not­um í skól­an­um. ,,Við feng­um styrk á skóla­vör­um frá A4 og sund­poka frá Tulipop sem við gef­um börn­un­um með skóla­dót­inu í. Svo ákváðum við að safna í sjóð sem er meðal ann­ars fyr­ir laun­um kenn­ar­ana en meðal­kenn­ara­laun í Nepal eru um 12.000 ís­lensk­ar krón­ur á mánuði.” Þeir sem hafa áhuga á að styrkja þetta göf­uga starf fjár­hags­lega geta lagt inn á banka  0101-15-383818, kennitala: 230375-4029. 
Einnig verður hægt að fylgj­ast með verk­efn­inu á In­sta­gramsíðu hóps­ins Nepaltigertopsschool_fund­ing.
Skólinn sér börnunum fyrir skólafötum, skóladóti, mat og lækniskostnaði.
Skól­inn sér börn­un­um fyr­ir skóla­föt­um, skóla­dóti, mat og lækn­is­kostnaði. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka