Heitasta matarborg heims

Niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að París er heitasta matarborg …
Niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að París er heitasta matarborg í heimi. Ljósmynd/Pixabay

Reykja­vík verður sí­fellt meiri mat­ar­borg og end­ur­spegl­ast það í flóru veit­inga­húsa í borg­inni, það eru þó lík­lega færri ferðamenn sem heim­sækja landið til þess eins að gæða sér á ís­lensk­um mat. Öðru máli gegn­ir þó um Par­ís, höfuðborg Frakk­lands, en hún hef­ur lengi vel verið þekkt sem vagga mat­ar­menn­ing­ar í heim­in­um. Vefsíðan Globehun­ters hratt af stað könn­un um dag­inn þar sem les­end­ur voru meðal ann­ars beðnir um álit á helstu mat­ar­borg­um heims­ins og niðurstaðan var sú að Par­ís trón­ir enn á toppn­um. Það kem­ur kannski á óvart að Tokyo, höfuðborg Jap­ans, er í öðru sæti en þriðja sætið fór til Barcelona á Spáni. Í fjórða og fimmta sæti voru svo Lissa­bon og London.

Niður­stöður úr könn­un­inni má skoða frek­ar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert