Hvar á Davíð að kaupa ölið?

Skál í boðinu.
Skál í boðinu. Ljósmynd/Wikimedia

Þess er skemmst að minn­ast að fyr­ir ein­ung­is þrjá­tíu árum var bjór­banni aflétt á Íslandi og hef­ur mjöður­menn­ing­in held­ur bet­ur blómstrað síðan. Víðast í heim­in­um má nálg­ast ölið í óbreytt­um mat­vöru­versl­un­um en það á ekki við hér á landi, alla­vega ekki enn sem komið er. Ferðamenn sem ekki vita bet­ur skutla kippu eft­ir kippu í inn­kaupa­kerr­una og skilja svo ekk­ert í því að þeir finna ekki á sér eft­ir að hafa inn­byrgt heil­mikið magn af malti eða pil­sner. Melt­ing­in er aft­ur á móti kom­in í ljóm­andi gott ástand, eins og miðinn á malt­inu seg­ir til um.

Mik­il umræða skap­ast oft um verðmiðann á mjöðunum og kvarta ís­lend­ing­ar sem ferðamenn æ yfir ís­lenska verðlag­inu. Banda­ríski fréttamiðill­inn The Wall Street Journal tók ný­lega sam­an verðlag á öli frá öll­um heims­horn­um og komst að ansi áhuga­verðri niður­stöðu. Þess má geta að að upp­taln­ing­in sem fer fram hér að neðan er miðuð við meðaltal og því má bú­ast við að í hverju landi fyr­ir sig sé hægt að finna dýr­ari sem ódýr­ara öl. Verðið sem tekið er dæmi um hér miðast við hálf­an líter af bjór sem keypt­ur er á bar.

Dýr­asti bjór í heimi

Hong Kong - 1.306 kr.

Genf - 1.295 kr

Tel Aviv - 1.146 kr.

Miami & New York -  1.079 kr.

Singa­pore - 1.006 kr.

Samkvæmt niðurstöðu The Wall Street Journal er ódýrasti bjórinn í …
Sam­kvæmt niður­stöðu The Wall Street Journal er ódýr­asti bjór­inn í Ausst­ur- Evr­ópu. Ljós­mynd/​Pixa­bay

Ódýr­asti bjór­inn

Brat­islava - 267 kr.

Dehli - 277 kr.

Kiev - 283 kr.

Ho Chi Minh - 258 kr.

Kra­ká - 324 kr.

Þess má geta að Reykja­vík var í 43. sæti af þeim 75 borg­um sem tekn­ar voru til skoðunar. Meðal­verð á bjór í Reykja­vík er 596 kr. sam­kvæmt könn­un­inni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka