Smágrísakaffihús opnar í Tokyo

Krúttlegur smágrís kíkir í morgunkaffi á Mipig kaffihúsinu í Tokyo.
Krúttlegur smágrís kíkir í morgunkaffi á Mipig kaffihúsinu í Tokyo. Ljósmynd/Mipig

Lengi vel hef­ur þekkst að eiga grísl­ing sem gælu­dýr og þá aðallega hjá fræga fólk­inu í Hollywood en vin­sæld­irn­ar hafa þó ekki náð mikl­um hæðum hérna á klak­anu, alla­vega ekki ennþá. Vin­sæld­irn­ar virðast vera að aukast víðar en í Banda­ríkj­un­um því að ný­lega var opnað smágrísakaffi­hús í höfuðborg Jap­ans, Tokýó.

Eig­andi og hug­mynda­smiður­inn á bakvið Mipig kaffi­húsið vildi auka á vin­sæld­ir gælu­dýrs­ins í heima­land­inu og tók á það ráð að opna kaffi­hús þeim til heiðurs. Hann seg­ir dýr­in vera sér­stak­lega gæf og góður gælu­dýra­kost­ur sem fleiri ættu að taka að sér. Smágrísakaffi­húsið í Tókýó er þó ekki eina gælu­dýrakaffi­húsið í borg­inni því þar er einnig að finna hunda-, katta- og uglukaffi­hús.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert