Kokkaflakk í Chicago

Hluti af hópnum á bakvið Kokkaflakk saman komin. Frá vinstri: …
Hluti af hópnum á bakvið Kokkaflakk saman komin. Frá vinstri: Atli Arnarsson, hljóðmaður, Hannes Þór Arason, leikstjóri, Andri Haraldsson, kvikmyndatökumaður, Ólafur Örn, þáttastjórnandi, Ingi R. Sigurðsson ásamt Díönu, eiginkonu sinni, syni og hundi. Ljósmynd/Aðsend

„Mig hef­ur lengi langað að heim­sækja, Chicago Ill­in­o­is. Chicago er ein af stærstu borg­um Banda­ríkj­anna,“ seg­ir Ólaf­ur Örn.  „Borg­in er fræg fyr­ir fal­leg­an og mik­il­feng­leg­an arkí­tekt­úr og skýja­kljúfa. Enda var það þar sem fyrstu skýja­kljúf­ar heims­ins risu. Borg­in stend­ur við Lake Michigan og er mikið líf við strönd­ina á sumr­in, en götu­lífið í fjöl­breyti­leg­um hverf­um borg­ar­inn­ar er ekki síður líf­legt. Chicago er sögu­fræg borg fyr­ir margra hluta sak­ir. Upp­gang­ur mafíunn­ar á bann­ár­un­um set­ur svip á sögu borg­ar­inn­ar og sjálf­um finnst mér stór­merki­leg sag­an af fæðingu Chicago Hou­se tón­list­ar­inn­ar og hvet þá sem heim­sækja borg­ina að ganga um með hou­se músik í eyr­un­um.

Í borg­inn býr mat­reiðslumaður­inn Ingi R. Sig­urðsson ásamt fjöl­skyldu en hann vann lengi ein­um virt­asta veit­ingastað heims, þriggja Michel­in-stjörnu staðnum Al­inea. „Í dag vinn­ur hann á stað í eigu sömu grúppu og Al­inea sem heit­ir The Aviery. Sá staður er koktel­b­ar og er nr. 19 á lista yfir bestu kokteil­bari heims­ins. Ingi er yfir þeim hluta bars­ins sem býri til nýja drykki. Við heim­sótt­um fjöl­skyld­una hans í eitt af út­hverf­um borg­ar­inn­ar þar sem hann býr með kon­unni sinni og tveim­ur börn­um.“

Steingrímur Jón Þórðarson, kvikmyndatökumaður ásamt Hannesi Þór, leikstjóra, Atla Arnarssyni, …
Stein­grím­ur Jón Þórðar­son, kvik­mynda­tökumaður ásamt Hann­esi Þór, leik­stjóra, Atla Arn­ars­syni, hljóðmanni og viðmæl­and­and­um Inga R. Sig­urðssyni í miðborg Chicago. Ljós­mynd/​Aðsend

Chicago er stór­merki­leg borg þar sem mikið er hægt að skoða. „Bygg­inga­sag­an er stór­merki­leg og skýja­kljúf­arn­ir í gömlu borg­inni eru stór­feng­leg­ir. Í Chicago er líka eitt merki­leg­asta nú­tíma­lista­safn heims sem er vert að gefa sér góðan tíma í að skoða. Þar við hliðina á er Milenni­um park sem er gam­an að spóka sig í. Navi Pier er stór bryggja sem er við strönd Lake Michigan og er gam­an að skoða að kvöldi til og þaðan er hægt að fara í út­sýn­is­sigl­ing­ar um vatnið. Ég er bú­inn að horfa á svo mikið af bíó­mynd­um um mafín­una að mér finnst mjög áhuga­verð saga af upp­gangi henn­ar í Chicago og það er hægt að finna skipu­lagðar ferðir um borg­ina á slóðir mafíunn­ar, sem ég fer pottþétt í næst.“

En hvar á maður að borða í borg­inni?

„Chicago er fjöl­menn­ing­ar­borg. Þar eru ótal hverfi fólks af mis­mun­andi upp­runa. Þarna er Gríska hverfið og þar er góður grísk­ur mat­ur, Í víet­namska hverf­inu er góður víet­namsk­ur mat­ur og þar mæli ég sér­stak­lega með Tank Noodle, sem er geggjaður staður. Í pólska hverf­inu er góður pós­sku mat­ur og svo fram­veg­is. All­ir sem koma til Chicago eiga að fá sér Chicago style hot dog, Pönnu pizzu og Itali­an beef sam­loku sem er dýft í nauta­soð. Geggjað stöff!,“ seg­ir Ólaf­ur Örn.

Þátt­ur­inn sem fram­leidd­ur er af SKOT producti­on verður sem fyrr seg­ir sýnd­ur í op­inni dag­skrá í Sjón­varpi Sím­ans í kvöld en alla þáttaröðina má finna í Sjón­varpi Sím­ans Premium.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert