Ævintýralegt líf Eddie Klint

Eddie og Louis á hinum vinsæla Kombucha-bar.
Eddie og Louis á hinum vinsæla Kombucha-bar. Ljósmynd/Klint & Bro

„Faðir minn var einn af þeim sem gerðu upp skonn­ort­una á átt­unda ára­tugn­um en hún var upp­haf­lega byggð sem tog­ari árið 1952 í Þýskalandi. Þannig að ég nán­ast bjó um borð öll sum­ur sem barn og kunni vel við það. Þegar Norður­sigl­ing keypti svo Opal árið 2013 var ég hluti af áhöfn­inni sem sigldi henni til Húsa­vík­ur ásamt skip­stjór­an­um Heimi Harðar­syni. Ég heillaðist gjör­sam­lega af Íslandi bæði af nátt­úru og dýra­lífi,“ seg­ir Eddie. Tveim­ur árum síðar bauðst hon­um svo að vera hluti af áhöfn á Opal í sigl­ingu á Græn­landi, nán­ar til­tekið í Scor­es­by-sundi á Aust­ur-Græn­landi. „Mér bauðst þetta verk­efni þar sem ég þekki skipið vel auk þess sem ég er liðtæk­ur í eld­hús­inu. Nátt­úru­feg­urðin í Græn­landi er ein sú mesta sem ég hef aug­um litið og lík­ist ekki neinu öðru á jörðinni.“

Eddie hefur meðal annar setið fyrir framan á hinu fallega …
Eddie hef­ur meðal ann­ar setið fyr­ir fram­an á hinu fal­lega tíma­riti Kin­folk. Skja­skot/​Kin­folk

Það að Eddie sé liðtæk­ur í eld­hús­inu er kannski vægt til orða tekið en hann lærði mat­reiðslu á Michel­in-stjörn­ustaðnum En­semble í Kaup­manna­höfn og þar af leiðandi framúrsk­ar­andi góður kokk­ur. Að nám­inu loknu bauðst hon­um að vinna sem fyr­ir­sæta í New York þar sem hann hef­ur meðal ann­ars gengið á tískupöll­um fyr­ir Prada og Bottega Veneta. Þegar hann bjó í stór­borg­inni komst hann í kynni við lit­ríka drykki í mat­vöru­versl­un­um sem hrein­lega heilluðu hann upp úr skónn­um. „Þetta var kombucha-drykk­ur­inn, ég varð strax mjög hrif­inn af bragðinu þar sem það var ekki eins sætt og marg­ir aðrir lit­rík­ir drykk­ir.“ Eft­ir að Eddie sneri aft­ur heim til Dan­merk­ur tók við kvik­mynda­nám þar sem hann kynnt­ist Lou­is vini sín­um. „Okk­ur langaði að vinna að ein­hverju verk­efni sam­an þannig að við ákváðum að opna kombucha-bar­inn Klint & Bro.“ Fyr­ir þá sem ekki vita hvað kombucha er þá er það drykk­ur sem verður til í gerj­un­ar­ferli þar sem te er notað sem grunn­ur. „Það er talið að drykk­ur­inn hafi verið fund­inn upp fyr­ir 2000 árum í Kína en hann hef­ur orðið veru­lega vin­sæll á Vest­ur­lönd­um á und­an­förn­um árum,“ seg­ir Eddie.

Kombucha-drykkirnir hafa notið mikilla vinsælda í Danmörku.
Kombucha-drykk­irn­ir hafa notið mik­illa vin­sælda í Dan­mörku. Ljós­mynd/​Klint & Bro

Viðtök­urn­ar hafa ekki látið á sér standa en fljót­lega eft­ir að fyrsti kombucha-drykk­ur­inn kom út frá þeim var hann val­inn besti drykk­ur árs­ins í stærstu mat­reiðslu­keppni Dan­merk­ur, Sol Over Gudhjem, en að sögn Eddie var það mik­ill heiður fyr­ir svona lítið fyr­ir­tæki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert