Hundur í hádegismat

Hundarnir sóma sér vel á útisvæðinu á Wilson-veitingastaðnum í New …
Hundarnir sóma sér vel á útisvæðinu á Wilson-veitingastaðnum í New York. Mynd/Jenna Murray

Kannski stytt­ist svo í það að ís­lensk veit­inga­hús bjóði upp á mat­seðla sér­sniðna að hund­um eins og á Wil­son-veit­inga­hús­inu í New York. Að sögn yfir­kokks­ins kom þessi hug­mynd upp þegar hann sjálf­ur var að elda fyr­ir hund­inn sinn og hef­ur verið vel tekið í þessa nýj­ung.

Hundarnir eða eigendur þeirra geta valið á milli þess að …
Hund­arn­ir eða eig­end­ur þeirra geta valið á milli þess að fá rib eye-steik, lax eða kjúk­ling. Mynd/​Jenna Murray

Á mat­seðlin­um er til dæm­is að finna grillaða rib eye-steik með græn­meti en líka lax og kjúk­ling. Vegna reglna frá heil­brigðis­eft­ir­lit­inu þurfa hund­arn­ir að borða á úti­svæði og verða að vera í ól sem kem­ur þó ekki að sök því hund­arn­ir virðast al­sæl­ir með þenn­an nýja val­kost.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert