Fegurð Íslands í forgrunni

Þættirnir eru allir teknir utandyra þar sem íslensk náttúra fær …
Þættirnir eru allir teknir utandyra þar sem íslensk náttúra fær að njóta sín. Ljósmynd/Aðsend

Víða verður farið um landið í þátt­un­um en í fyrsta þætt­in­um er Norður­land eystra í for­grunni. „Við heim­sækj­um Mý­vatn og Tungu­lend­ingu í Tjör­nesi sem er skammt fyr­ir utan Húsa­vík. Við Mý­vatn hitt­um við Ant­on Birg­is­son ferðamála­frömuð og fjöl­skyldu hans og veiðum sil­ung í miðnæt­ur­sól­inni við Mý­vatn. Við gufusuðum sil­ung­inn í gufu­hver í Bjarn­ar­flagi í Mý­vatns­sveit og bár­um fram á beði af stúfuðu spínati. Þá för­um við á andareggja­veiðar í Slútt­nesi, sem er eyja í Mý­vatni, og út­bú­um mý­vetnska snittu. Eft­ir æv­in­týri okk­ar á Mý­vatni ókum við til Tungu­lend­ing­ar þar sem við eld­um upp úr mý­vetnsku kinda­hakki, hnoðum það í bryggju­boll­ur, með Skjálf­anda í bak­grunn fyr­ir ást­fangna ferðamenn.“

Gufusoðinn silungur með stúfuðu spínati. Allar uppskriftir má finna á …
Gufu­soðinn sil­ung­ur með stúfuðu spínati. All­ar upp­skrift­ir má finna á vefsíðu Ragn­ars Freys. Ljós­mynd/​Aðsend

Jók á stoltið

Þætt­irn­ir búa yfir þeirri sér­stöðu að vera tekn­ir ut­an­dyra und­ir mis­björt­um ís­lensk­um himni og að sögn Ragn­ars Freys gat það verið mik­il áskor­un á köfl­um að elda úti í guðsgrænni nátt­úr­unni. „Ég er auðvitað eins og flest­ir aðrir sem al­ast upp í nú­tíma­legu eld­húsi með blást­ur­sofn og span- eða gashell­ur í kring­um mig. Þarna skár­um við við nögl og elduðum allt á opn­um eldi eða yfir brenn­andi kol­um. Ég var bara með pönnu eða pott og bara bretti og hníf – elda­mennsk­an er því of­ur­ein­föld og all­ir ættu að geta leikið hana eft­ir. Ef ég get eldað ljúf­feng­an mat við þess­ar aðstæður ættu all­ir að geta gert það heima í eld­húsi.“ Í þátt­un­um er ís­lensku hrá­efni hampað til hins ýtr­asta og mark­miðið að not­ast ein­ung­is við hrá­efni úr næsta ná­grenni. „Við Íslend­ing­ar njót­um þess að hafa aðgang að ótrú­lega fersku hrá­efni. Í þess­um þátt­um leggj­um við áherslu á þann mat sem hef­ur haldið lífi í okk­ur Íslend­ing­um í gegn­um ár­hundruðin, dá­sam­legt ís­lenskt lamba­kjöt, spriklandi ferskt sjáv­ar­fang og ljúf­fengt ís­lenskt græn­meti og kryd­d­jurtir. Og svo smjör auðvitað, það verður að vera smjör!“

Sjálf­ur hef­ur Ragn­ar ferðast tölu­vert um landið en seg­ir að vinn­an við gerð þátt­anna hafi aukið á stolt hans gagn­vart land­inu sem við búum í. „Ég vissi að Ísland væri fal­legt land en gerði mér enga grein fyr­ir því að það væri jafn magnað og upp­lif­un­in bar vitni. Ég vona að sú til­finn­ing skíni í gegn í þátt­un­um. Fyr­ir mig eru þess­ir þætt­ir ákveðin sál­ar­ró, tón­list­in, mat­seld­in og nátt­úr­an taka mann ein­hvern veg­inn úr amstri hvers­dag­ins og yfir í allt ann­an takt.“

Mat­reiðsluþætt­irn­ir Lambið og miðin eru fram­leidd­ir af fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Kraum­ar í sam­starfi við Lækn­inn í eld­hús­inu. Þeir eru sýnd­ir á fimmtu­dags­kvöld­um klukk­an 20:10 í op­inni dag­skrá í Sjón­varpi Sím­ans. All­ar upp­skrift­ir má svo finna á vefsíðu Ragn­ars Freys.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert