Ferðamenn smakka íslenskan mat

Svipbrigði smakkarana eru óborganleg.
Svipbrigði smakkarana eru óborganleg. Mynd/Skjaskot Youtube

Iðulega geifla þeir sig og gretta en sum­ir eru bara ansi hreint hrifn­ir af veit­ing­un­um. Ferðalang­arn­ir geðþekku, Kara og Nate, hafa víða ferðast og halda úti líf­legri vefsíðu þar sem þau miðla góðum ferðaráðum og reynslu af hinum ýmsu áfanga­stöðum. Á ferð sinni um Ísland tóku þau sig til og smökkuðu á ís­lensk­um mat svo sem há­karli, harðfiski, sviðum, rúg­brauði og jóg­úr­ti. Til allr­ar lukku tóku þau upp mynd­band af verknaðinum þar sem hægt er að sjá og hlæja að óborg­an­leg­um svip­brigðum smakk­ar­anna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert