Fallegasta sviðsmynd sem hægt er að hugsa sér

Ragnar Freyr ásamt þeim Elísabetu, leiðsögukonu, og Hlyn, skipstjóra hjá …
Ragnar Freyr ásamt þeim Elísabetu, leiðsögukonu, og Hlyn, skipstjóra hjá Norðursiglingu. Ljósmynd/Aðsend

„Við vor­um áfram á Norður­landi í þess­um þátt­um og Húsa­vík og Skjálf­andi skörtuðu sínu feg­ursta. Við feng­um Elísa­betu, leiðsögu­mann, og Hlyn skip­stjóra hjá Norður­sigl­ingu til að sigla með okk­ur út í Nausta­vík í Nátt­fara­vík­um. Þar í vík­inni fyr­ir neðan Garðars­hólma elduðum þorsk sem við veidd­um í sjón­um skammt fyr­ir utan vík­ina.  Við reist­um eld­stæði og eld­un­araðstöðu með því að safna rekaviði sam­an og í fjöru­borðinu elduðum við þenn­an spriklandi ferska þorsk „en papillote“ - sem þýðir að hann var pakkaður inn í álp­app­ír, en ekki fyrr en hann hafði verið troðin með lauk, ís­lensk­um tómöt­um og glás af fersk­um kryd­d­jurt­um,“ seg­ir Ragn­ar Freyr og bæt­ir við að þorsk­ur­inn hafi verið bor­inn fram með geggjaðasta lauks­mjöri sem hann hafi smakkað.

Þorskurinn með besta lauksmjöri sem þáttastjórnandinn hefur smakkað.
Þorsk­ur­inn með besta lauks­mjöri sem þátta­stjórn­and­inn hef­ur smakkað. Ljós­mynd/​Aðsend

Ragn­ar Freyr seg­ir Nausta­vík ótrú­leg­an stað og það sé eig­in­lega ekki hægt að hugsa sér draum­kennd­ari stað til að borða veislu­máltíð á. „Það vitjaði okk­ar ref­ur síðla kvölds og svo vöktu sel­ir skammt fyr­ir utan vík­ina. Á heim­leiðinni sá ég svo hnúfu­bak­spar - og þar rætt­ist svo sann­ar­lega gam­all draum­ur, en ég hef verið hvalaunn­andi frá blautu barns­beini en aldrei verið í svona mik­illi nánd við þess­ar stór­kost­legu skepn­ur.“

Rýnt á bakvið tjöldin þar sem verið er að undirbúa …
Rýnt á bakvið tjöld­in þar sem verið er að und­ir­búa þorskinn í Nausta­vík. Ljós­mynd/​Aðsend

Í þætt­in­um heim­sæk­ir Ragn­ar Freyr einnig þau Pál og Heiðbjörtu sem rækta tóm­ata, paprík­ur, gúrk­ur, græn­kál og chili á Hvera­völl­um. „Mark­miðið var að taka snún­ing á ís­lensku kjötsúp­una en Páll plataði mig langt af leið og fékk mig til að prófa ým­is­kon­ar hrá­efni sem ég hafði aldrei notað í kjötsúpu áður - enda fékk hún nafnið kjötsúpa með ólög­legu efni.“

Lambið og miðin verða í op­inni dag­skrá í Sjón­varpi Sím­ans í kvöld og í kjöl­farið má svo finna all­ar upp­skrift­ir úr þætt­in­um á vefsíðu Ragn­ars Freys.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert