Erfitt að velja á milli barna sinna

Ragnar Freyr hugleiðir í Merkigili.
Ragnar Freyr hugleiðir í Merkigili. Ljósmynd/Aðsend

Við vor­um ein­stak­lega hepp­in með veður síðastliðið sum­ar, trúi því hver sem vill, og feng­um alltaf það veður sem við þurft­um til að láta landið okk­ar skarta sínu feg­ursta í takt við mat­inn.

Gómsæt humarsamloka á ströndinni.
Góm­sæt humarsam­loka á strönd­inni. Ljós­mynd/​Aðsend

Við hóf­um ferðalagið að þessu sinni á Stokks­eyri þar sem Elv­ar, yfir­kokk­ur á Rauða hús­inu, kenndi okk­ur hvernig best væri að verka og elda hum­ar. Með þá þekk­ingu í fartesk­inu lá leið okk­ar suður á við þar sem við kom­um okk­ur fyr­ir hjá skips­flaki í miðri Bakka­fjöru. Það var dágóður spöl­ur og tölu­vert erfiði að koma sér þangað en auga Kristjáns Kristjáns­son­ar leik­stjóra var full­visst um að þetta yrði erfiðis­ins virði. Það stóð heima. Því­lík feg­urð sem svört strönd­in með Vest­manna­eyj­ar, tíg­ul­leg­ar í bak­grunn, og Eyja­fjöll­in, kynn­gi­mögnuð í for­grunn, gaf okk­ur. Meðan öld­urn­ar marg­brotnuðu í fjör­unni elduðum við eina mögnuðustu humarsam­loku sem ég hef smakkað. 

Leið okk­ar lá upp að Stóra-Dím­on við Mar­kánna. Þar var auðvelt að sækja sér inn­blást­ur. Nátt­úr­an lék á alla sína strengi og við feng­um milda skúr, logn og svo eitt dá­sam­leg­asta sól­ar­lag sem ég hef á ævi minni séð.

Við hóf­um elda­mennsk­una í bak­g­arði bú­staðar sem ný­verið hafði hýst tón­list­ar­mann­inn Sting en luk­um elda­mennsk­unni í botni Merk­urgils sem ber sko nafn með rentu. Valdi­mar, ungi leiðsögumaður­inn okk­ar, teymdi okk­ur í gegn­um mitt­is­djúpa á og metrabreiðar gjár í biksvörtu gil­inu til að enda loks í fal­inni para­dís þar sem við nærðumst á ljúf­fengu gúllas­inu. 

Þættirnir eru teknir upp í mögnuðu umhverfi.
Þætt­irn­ir eru tekn­ir upp í mögnuðu um­hverfi. Ljós­mynd/​Aðsend

Mat­reiðsluþætt­irn­ir Lambið og miðin eru sýnd í op­inni dag­skrá í Sjón­varpi Sím­ans í kvöld. All­ar upp­skrift­ir úr þátt­un­um má finna á vefsvæði Lækn­is­ins í eld­hús­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert