Áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir og stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason skruppu til Lundúna saman um helgina. Lína og Guðmundur hafa gert vel við sig á heitustu stöðum Lundúna.
Þau Lína Birgitta og Guðmundur hafa gert ferðinni góð skil á Instagram. Þau birta ekki myndir af sér saman en fylgjendur þeirra beggja þurfa ekki að skoða myndir þeirra og sögur lengi til þess að sjá að þau eru saman í ferðinni.
Guðmundur greinir frá því á Instagram að þetta sé fyrsta skipti sem hann fer til Bretlands. Lína Birgitta er hins vegar öllum hnútum kunnug í Lundúnum. Hún þekkir alla heitustu staðina og flottustu merjavörubúðirnar í borginni. Fóru þau Lína Birgitta og Guðmundur til að mynda í merkjavörubúðir á borð við Alexander McQueen á sunnudaginn og borðuðu Instagram-staðnum Sketch.
Lína Birgitta hætti með kærasta sínum Elmari Erni Guðmundssyni í október en Guðmundur er fráskilinn.
View this post on InstagramA post shared by Gudmundur Birkir Palmason (@gummikiro) on Feb 9, 2020 at 2:03am PST
View this post on InstagramA post shared by Lína Birgitta (@linabirgittasig) on Feb 9, 2020 at 4:27am PST