Ef þú ætlar að labba eitthvað af viti og ekki verða illt í fótunum þá þarftu að eiga góða gönguskó. Scarpa Terra Gore-Tex-gönguskórnir eru léttir og þægilegir gönguskór fyrir alla hefðbundna útiveru og styttri göngu eða fjallaferðir. Þeir henta líka vel yfir vetrartímann.
Helstu eiginleikar:
Efri hluti gerður úr 2 mm Nubuck-vatnsþéttu leðri
Gore-Tex-þétting
Mjúkur innri sóli
PU-Direct Attach-miðsóli
Vibram® Energy II / XS Trek-ytri sóli
Sterkir og endingargóðir
Stærðir: 36-43
Þyngd: 490 g (einn skór af stærð 38).