Breyttu skólabíl í draumaheimilið

Harry og Hannah Shaw keyptu skólarútu og gerðu hana að …
Harry og Hannah Shaw keyptu skólarútu og gerðu hana að drauma heimilinu sínu. Skjáskot/Instagram

Hin áströlsku Harry og Hannah Shaw keyptu skóla­bíl í ág­úst árið 2018. Þau hafa nú eytt rúm­um tveim­ur árum í að gera hann upp og er hann orðinn að drauma­heim­ili þeirra. 

Það fór mik­il vinna í að gera bíl­inn upp en hann var enn notaður sem skóla­bíll þegar þau keyptu hann af litlu rútu­fyr­ir­tæki. Þau höfðu enga þekk­ingu á því að gera upp rútu áður en þau lögðu af stað í þetta æv­in­týri en lærðu allt sem þau þurftu á YouTu­be auk þess sem þau fengu hjálp hjá fjöl­skyldu og vin­um. 

Þau ferðast nú um Ástr­al­íu á bíln­um og njóta lífs­ins, en bæði geta þau unnið fjar­vinnu í bíln­um. 

Harry og Hannah á nýja heimilinu sínu.
Harry og Hannah á nýja heim­il­inu sínu. Skjá­skot/​In­sta­gram



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert