Mikilvægt að almenningur eigi rétt á frjálsri för

Mikilvægt er að ganga vel um náttúruna og leyfa henni …
Mikilvægt er að ganga vel um náttúruna og leyfa henni að njóta vafans í samskiptum við manninn Ljósmynd/Ferðafélag Íslands

Á árum áður var hlut­verk al­manna­rétt­ar öðru frem­ur að tryggja mögu­leika fólks á að kom­ast milli staða. Nú á dög­um er hlut­verk al­manna­rétt­ar ekki síður að tryggja öll­um al­menn­ingi mögu­leika á að njóta og upp­lifa nátt­úru lands­ins. Með vax­andi úti­vist og með fjölg­un ferðamanna hef­ur um­ferð um landið vaxið gíf­ur­lega.

Al­manna­rétt­ur er einn af lyk­ilþátt­um nátt­úru­vernd­ar­laga.

Á árum áður var hlut­verk al­manna­rétt­ar öðru frem­ur að tryggja mögu­leika fólks á að kom­ast milli staða. Nú á dög­um er hlut­verk al­manna­rétt­ar ekki síður að tryggja öll­um al­menn­ingi mögu­leika á að njóta og upp­lifa nátt­úru lands­ins. Með vax­andi úti­vist og með fjölg­un ferðamanna hef­ur um­ferð um landið vaxið gíf­ur­lega.

Nátt­úru­upp­lif­un og úti­vist er ná­tengd nátt­úru­vernd og því er al­manna­rétt­ur órjúf­an­leg­ur þátt­ur í lög­um um nátt­úru­vernd. Al­menn­ing­ur á Íslandi hef­ur sterk tengsl við landið og nátt­úr­una og viðhorf fólks til nátt­úru­vernd­ar eru grund­völluð á þess­um tengsl­um. Því er mik­il­vægt að lög um aðgengi fólks að nátt­úr­unni séu sann­gjörn. Þannig er til dæm­is hlut­verk þjóðgarða einkum tvíþætt, ann­ars veg­ar að vernda nátt­úr­una og hins veg­ar að tryggja rétt al­menn­ings til að ferðast um landið.

Mik­il­vægt er að al­menn­ing­ur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land enda styðst það við rétt og hefðir á Íslandi frá ör­ófi alda. Stærst­ur hluti óræktaðs lands er móar, mel­ar, heiðalönd og útjörð sem er lítið eða ekki nýtt nema þá helst til beit­ar. Eng­in vernd­un­ar- eða nytjaþörf er því á að tak­marka eða banna um­ferð gang­andi fólks um slík svæði. Sömu­leiðis er mik­il­vægt að tryggja um­ferð hjólandi og ríðandi sem og aðra um­ferð ferðamanna um landið enda gildi sömu sjón­ar­mið fyr­ir alla hópa úti­vist­ar varðandi vernd nátt­úr­unn­ar og al­manna­rétt­ar að teknu til­liti til aðstæðna á hverju svæði fyr­ir sig.

Um leið og mik­il­vægt er að tryggja al­manna­rétt fólks þá er eðli­legt að við sem ferðumst um landið skilj­um að hann get­ur ekki verið án tak­marka enda komi slík ákvæði fram í nátt­úru­vernd­ar­lög­um. Eðli­legt er að Um­hverf­is­stofn­un hafi til þess heim­ild að grípa til tak­mörk­un­ar á um­ferð í þágu vernd­ar viðkvæmr­ar nátt­úru enda liggi fyr­ir skýr­ar ástæður fyr­ir tak­mörk­un á um­ferð.

Til­lits­semi, sam­starf, sam­vinna og virðing eru lyk­ilþætt­ir þegar kem­ur að ferðum okk­ar um landið. Í því felst meðal ann­ars að fá leyfi land­eig­enda, upp­lýsa um för okk­ar, fylgja lög­um og regl­um, sýna ólík­um ferðamáta til­lits­semi og síðast en ekki síst að sýna nátt­úr­unni virðingu í för okk­ar um landið.

Uppbygging innviða er mikilvæg til að stuðla að náttúruvernd, stýra …
Upp­bygg­ing innviða er mik­il­væg til að stuðla að nátt­úru­vernd, stýra um­ferð og styrkja al­manna­rétt. Ljós­mynd/​Ferðafé­lag Íslands
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert