Soliani mætt til Mykonos

Nathalia Soliani þykir hitinn steikjandi á grísku eyjunni Mykonos.
Nathalia Soliani þykir hitinn steikjandi á grísku eyjunni Mykonos. Skjáskot/Instagram

Bras­il­íska of­ur­fyr­ir­sæt­an Nathalia Soli­ani er stödd í sól­inni á grísku eyj­unni My­konos um þess­ar mund­ir sam­kvæmt sam­fé­lags­miðlin­um In­sta­gram. Eyj­an þykir ein af djásn­um gríska Eyja­hafs­ins og er einn vin­sæl­asti ferðamannastaður fræga fólks­ins í Evr­ópu. 

Soli­ani birt­ir mynd af sér á In­sta­gram þar sem hún geng­ur upp tröpp­ur og með gríska Eyja­hafið í bak­grunni. „Það var steikj­andi hiti í dag,“ skrifaði hún við mynd­ina. 

Eyj­an My­konos komst tals­vert í umræðuna í sum­ar þegar fyrr­ver­andi knatt­spyrnumaður­inn Rúrik Gísla­son var tal­inn hafa átt í leyni­legu ástar­sam­bandi á grísku eyj­unni með þýsku leik­kon­unni Valent­inu Pahde. Pahde var þátt­tak­andi í þýska raun­veru­leikaþætt­in­um Let's Dance þar sem hún kynn­ist Rúrik, sem vann keppn­ina svo eft­ir­minni­lega.

View this post on In­sta­gram

A post shared by NAT (@nathali­a­soli­an­i_)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert