Rúrik baðar sig við Como-vatn

Það væsir ekki um Rúrik við Como-vatn.
Það væsir ekki um Rúrik við Como-vatn. Skjáskot/Instagram

Fyrr­ver­andi knatt­spyrn­u­maður­inn Rúrik Gísla­son er dug­leg­ur að ferðast og er hann nú stadd­ur á Ítal­íu. Hann birti ný­verið mynd­ir af sér á sam­fé­lags­miðlin­um In­sta­gram þar sem hann nýt­ur lífs­ins á norður­hluta Ítal­íu, nán­ar til­tekið við Como-vatn í Lang­b­arðalandi, sem er vin­sæll ferðamannastaður ríka og fræga fólks­ins sem er þekkt fyr­ir að eiga vill­ur við vatnið.

Í story á In­sta­gram sést Rúrik baða sig í sund­laug með óend­an­leikakant þar sem út­sýnið yfir Como-vatn er stór­feng­legt.

Á mynd­inni sem hann birt­ir af sér á sam­fé­lags­miðlin­um er hann klædd­ur í svart­an leður­jakka og í hvítri skyrtu sem er hneppt niður um tvær töl­ur. Hárið er í lausu tagli. Rúrik held­ur á tvö­föld­um espresso­bolla í vinstri hendi, en í þeirri hægri held­ur hann á snjallsíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert