Tryllt stuð á Tenerife um áramótin

Ásgeir Kolbeinsson fagnaði nýju ári á Tenerife ásamt fjölskyldu og …
Ásgeir Kolbeinsson fagnaði nýju ári á Tenerife ásamt fjölskyldu og vinum. Skjáskot/Instagram

Fjöl­marg­ir Íslend­ing­ar skruppu í sól­ina til Teneri­fe um jól og ára­mót. Á meðal þeirra sem voru á Teneri­fe um ára­mót­in voru ráðherra, pró­fess­or í líf­töl­fræði og einn þekkt­asti fast­eigna­sali lands­ins. 

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðherra, var í leyfi frá störf­um en hann var stadd­ur á Teneri­fe um ára­mót­in. Guðlaug­ur fagnaði nýja ár­inu ásamt eig­in­konu sinni, Ágústu John­son, eig­anda Hreyf­ing­ar.

At­hafna­kon­an Birgitta Líf Björns­dótt­ir sleikti sól­ina með fjöl­skyld­unni yfir jól og ára­mót.

Einkaþjálf­ar­inn Eg­ill Ein­ars­son og sam­býl­is­kona hans, Guðríður Jóns­dótt­ir, fóru til Teneri­fe með börn­um og vin­um sín­um. Á meðal vina­fólks­ins var at­hafnamaður­inn Ásgeir Kol­beins­son og sam­býl­is­kona hans Bryn­dís Hera Gísla­dótt­ir. Stjörnufa­st­eigna­sal­inn Hann­es Stein­dórs­son sást einnig njóta á eyj­unni grænu. 

At­hafna­kon­an Marín Manda Magnús­dótt­ir og sam­býl­ismaður henn­ar Hann­es Frí­mann Hrólfs­son, fram­kvæmda­stjóri Kviku eign­a­stýr­ing­ar, voru ásamt börn­um sín­um á Teneri­fe.

Björk Eiðsdótt­ir blaðamaður á Frétta­blaðinu og Karl Ægir Karls­son, doktor í svefn­rann­sókn­um, fögnuðu nýju ári í sól­inni og það gerði líka Thor Asp­e­lund pró­fess­or í líf­töl­fræði ásamt eig­in­konu sinni, Örnu Guðmunds­dótt­ur. Á Teneri­fe var einnig Anna Þóra Björns­dótt­ir, uppist­and­ari og gler­augna­sali, ásamt eig­in­manni sín­um, Gylfa Björns­syni. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert