Einkaeyjur Epsteins til sölu

Einkaeyjur Jeffrey Epstein eru til sölu.
Einkaeyjur Jeffrey Epstein eru til sölu. AFP

Einka­eyj­ur kyn­ferðisaf­brota­manns­ins og auðkýf­ings­ins Jef­frey Ep­stein er nú til sölu. Um er að ræða tvær eyj­ur, Litla St. James og Stóra St. James, í Karíbahafi en ásett verð er 125 millj­ón­ir banda­ríkja­dala eða rúm­ir sex­tán millj­arðar króna. 

Lögmaður dán­ar­bús Ep­steins staðfest­ir við BBC að eyj­arn­ar séu til sölu og að nota eigi hagnaðinn af söl­unni til að ná sátt­um í úti­stand­andi lög­sókn­um gegn dán­ar­bú­inu. 

Ep­stein keypti smærri eyj­una fyr­ir um 25 árum síðan á tæp­ar 8 millj­ón­ir banda­ríkja­dala. Hann keypti stærri eyj­una árið 2016 fyr­ir 22,5 millj­ón­ir og hafði í huga að byggja eyj­una upp. 

Ep­stein lést í fanga­klefa árið 2019 á meðan mál hans beið meðferðar. Hann var sak­felld­ur árið 2008 fyr­ir að brjóta kyn­ferðis­lega á stúlku und­ir lögaldri. Auk þess hef­ur hann verið sakaður um man­sal og að hafa brotið á tug­um kvenna og stúlkna und­ir lögaldri. 

Var Ep­stein sakaður um að hafa meðal ann­ars brotið á ung­um stúlk­um á eyj­unni Litlu St. James. Í einu mál­anna sem höfðað var fyr­ir tveim­ur árum sagði 15 ára stúlka frá því að hún hefði reynt að flýja eyj­una með því að synda þaðan, en var hún hand­sömuð og vega­bréf henn­ar tekið af henni. Fleiri mál tengd Ep­stein og sam­verka­manna hans eru sögð hafa gerst á eyj­unni. 

Litla St. James í Karíbahafi.
Litla St. James í Karíbahafi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert