Íslensk flugfreyja gefur farþegum ráð

Íslensk flugfreyja segir að fólk ætti aldrei að fara á …
Íslensk flugfreyja segir að fólk ætti aldrei að fara á sokkunum á salernið og borða vel fyrir flug. Ljósmynd/Colourbox

Flugliðar ferðast oft­ar en flest­ir og verða oft og tíðum vitni að at­b­urðum sem fáir gætu ímyndað sér að ættu sér stað um borð í flug­vél. Ferðavef­ur mbl.is leitaði til ís­lenskr­ar flug­freyju sem seg­ir að þetta beri að var­ast í flugi. 

Drykkja um borð og fyr­ir flug

Spennt­ir og þyrst­ir ferðalang­ar eiga það til að missa sig í gleðinni þegar það kem­ur að áfeng­isneyslu. Það sem fáir vita er að áhrif áfeng­is magn­ast þegar vél­in er kom­in í loftið. Oft með þeim af­leiðing­um að fólk verður ofurölvi á skömm­um tíma. Þessi ís­lenska flug­freyja seg­ist hafa orðið vitni að því allt of oft að farþegar hafi þurft að kasta upp í miðju flugi - sér og öðrum til mik­illa óþæg­inda.

Unsplash/​Mohammad Arra­hm­an­ur

Skiptiaðstaða er inni á sal­ern­um

Þessi ís­lenska flug­freyja seg­ir að það sé fátt ógirni­legra en að ganga frá eft­ir flug og reka þá aug­un í kúka­bleiu sem skil­in hef­ur verið eft­ir í sætis­vas­an­um. Það er góð og gild ástæða fyr­ir því að það eru skipti­borð inni á öll­um sal­ern­um flug­véla. Þessi ís­lenska flug­freyja mæl­ir með því að farþegar sýni öðrum farþegum virðingu og skipti á af­kvæm­um sín­um inni á sal­ern­um - ekki í flug­sæt­inu.

Nær­ing er lyk­il­atriði fyr­ir flug

Íslenska flug­freyj­an seg­ir að það skipti máli að fólk borði fyr­ir flug. Hún seg­ir að blóðsyk­urs­fall á flugi sé mun al­gengra en fólki grun­ar. Það hef­ur því gerst oft­ar en einu sinni og oft­ar en tvisvar að liðið hef­ur yfir farþega. Hún mæl­ir með því að fólk drekki vel af vatni bæði fyr­ir flug og í flugi. 

unsplash/​toni­os­mundon

Vertu í skóm þegar þú stend­ur upp

Íslenska flug­freyj­an bend­ir á að fólk ætti aldrei að fara skó­laust inn á sal­erni. Það sé bæði vegna hrein­læt­is og líka vegna ör­ygg­is. 
Flug­véla­sal­erni eru í raun­inni al­menn­ings­sal­erni nema þau eru á hreyf­ingu sem veld­ur því að það er erfiðara fyr­ir suma að hitta á rétt­an stað. Hurðar inn á sal­erni geta lokast hratt og þá er verra ef tær verði á milli. Þessi flug­freyja hef­ur upp­lifað það að tánegl­ur hafi fokið af farþegum í flugi vegna skó­leys­is. 

Unsplash/​Su­hyeon Choi

Ælupok­ar eru ekki rusla­pok­ar

Í hverj­um sætis­vasa eru ælu­pok­ar ásamt ör­ygg­is­leiðbein­ing­um. Þessi ís­lenska flug­freyja bend­ir á að hver farþegi ætti að lesa leiðbein­ing­ar í hvert skipti því flug­vél­ar eru af mis­jöfn­um teg­und­um. Hún mæl­ir líka með því að fólk noti ælu­poka ekki sem rusla­poka. Það kem­ur oft­ar en fólk grun­ar fyr­ir að það vanti ælu­poka þegar farþegi þarf að kasta upp og það er ekki góð upp­lif­un fyr­ir neinn. 

Þessi ís­lenska flug­freyja mæl­ir líka með því að farþegar átti sig á því að flugliðar eru ekki upp á punt held­ur til að gæta ör­ygg­is allra um borð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert