Gerði ekki neitt í tvo mánuði í Feneyjum

Feneyjar er áfangastaður sem margir dreyma um að heimsækja.
Feneyjar er áfangastaður sem margir dreyma um að heimsækja. AFP

Marie Le Conte tók sér frí frá amstri hvers­dags­ins og varði tveim­ur mánuðum í Fen­eyj­um að gera ekki neitt. Hún var búin að safna sér dágóðri upp­hæð og Fen­eyj­ar urðu fyr­ir val­inu því hún átti ör­fáa vini þar auk þess sem borg­in hafði alltaf heillað hana.

Hik­andi með að láta vaða

„Ég var um tíma hik­andi með að verja öllu spari­fé­inu mínu í eitt­hvað jafn­til­gangs­laust. En ég sé ekki eft­ir krónu. Í tvo mánuði bjó ég í íbúð þar sem ef ég opnaði glugg­ann þá heyrði ég í bát­un­um þjóta fram­hjá. Ég drakk freyðivín úr litl­um krútt­leg­um glös­um alla daga og leyfði fót­un­um að dangla yfir síkj­un­um. Ég keypti allt græn­meti af bát. Svona var líf mitt í heila tvo mánuði,“ seg­ir Le Conte í pistli í The Sunday Times.

Fá­rán­leg­ar Fen­eyj­ar

„Fen­eyj­ar eru svo skemmti­lega fá­rán­leg­ar. Þar eru eng­ir bíl­ar, eng­ar aug­lýs­ing­ar á veggj­um. Þú verður að ganga allra þinna ferða eða hoppa um borð í bát. Lítið hef­ur breyst í um 100 ár. Það sem kom á dag­inn við að búa þarna er að ekk­ert er í raun til fyr­ir venju­legt fólk eins og mig. Jú, maður eign­ast sitt hver­fiskaffi­hús og svo­leiðis en þarna er t.d. bíó en maður veit ekk­ert hvað er verið að sýna fyrr en maður kem­ur á staðinn og nær í viku­ritið þeirra. Svo eru veit­ingastaðir sem opna og loka eft­ir hent­ug­leika. Heimasíður staðanna hafa ekki verið upp­færðar í fleiri ár og erfitt að fá upp­lýs­ing­ar um sýn­ing­ar og opn­un­ar­tíma. Það er bæði heill­andi og óþolandi í senn.“

Eng­inn í al­vöru vinnu

„Eng­inn er í raun­inni í „al­vöru“ vinnu. Flest­ir flæða um hin ýmsu störf í veit­inga­geir­an­um eða ferðaiðnaðinum. Ég sem hafði alltaf talið mig mjög „bóhem“ leið allt í einu eins og Marga­ret Thatcher!“

„Mér fannst ég alltaf vera fá­tæk þarna. Vissu­lega var ódýrt að vera alltaf fót­gang­andi og vínið var ódýrt. En allt annað var dýrt. Þeir vita að þeir búa á gull­fal­leg­um stað og kom­ast upp með verðlagn­ing­una. Það er hægt að borða á al­farið á veit­inga­stöðum ef maður er þarna í viku en það fer að taka veru­lega í ef maður íleng­ist þar.“

„Síðan er það mót­sögn­in. All­ir þarna kvarta yfir ferðamönn­un­um og þess­um leiðin­legu Kön­um en eng­inn myndi vita hvað þeir ættu að gera án þeirra! Fen­eyj­ar myndu sökkva ef ferðamenn­irn­ir væru ekki til staðar. Inn­fædd­ir vita að Fen­eyj­ar eru ekki „al­vöru“ staður og þar ligg­ur ein­mitt feg­urðin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert