Harpa í skýjunum með krýningarafmælið

Harpa Hrund Berndsen ásamt Dísu Stefánsdóttur frænku sinni, Eddison Peters …
Harpa Hrund Berndsen ásamt Dísu Stefánsdóttur frænku sinni, Eddison Peters og dóttur þeirra Freyju Hrund. Saman vörðu þau deginum í að fagna 70 ára krýningarafmæli drottningar. Ljósmynd/Aðsend

Harpa Hrund Berndsen seg­ir það hafa verið magnaða upp­lif­un að vera viðstödd hátíðahöld­in í kring­um 70 ára krýn­ing­araf­mæli drottn­ing­ar­inn­ar.

Harpa hef­ur á und­an­förn­um árum reynt að stilla ferðalög­in af til þess að geta verið viðstödd merkisviðburði kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar en hún var til dæm­is stödd í Windsor þegar Harry og Meg­h­an giftu sig. 

„Þetta var mjög eft­ir­minni­legt. Þetta er svo sögu­leg­ur viðburður enda hef­ur eng­inn bresk­ur þjóðhöfðingi fagnað 70 ára krýn­ing­araf­mæli fyrr og þetta mun ef­laust aldrei eiga sér stað aft­ur,“ seg­ir Harpa.

„Það sem stend­ur einna helst upp úr er að sjá all­an þenn­an fjölda sam­an­kom­inn til þess að fagna með drottn­ing­unni. Þá er ein­stak­lega gleðilegt að hún hafi getað tekið þátt í hátíðahöld­un­um en hún hef­ur verið nokkuð heilsu­veil upp á síðkastið.“

Ótrú­leg­ur mann­fjöldi í Lund­ún­um

Harpa seg­ir allt hafi gengið mjög vel þrátt fyr­ir mik­inn mann­fjölda.

„Ég hafði séð það fyr­ir mér að þetta yrði svipað því og þegar ég sá Harry og Meg­h­an gifta sig í Windsor. En þetta er á allt öðrum skala. Ég hef aldrei á æv­inni séð jafn­mikið fólk. Það er fólk alls staðar og all­ar göt­ur eru lokaðar. Það tók mjög lang­an tíma að kom­ast að höll­inni og svo aft­ur til baka. Ég var að tala við löggu og hann sagði að það væru um fimm millj­ón­ir ferðamanna í borg­inni þessa helgi og þá er ekki verið að telja með alla sem búa hér að staðaldri. En Bret­ar eru mjög skipu­lagðir og gæsl­an er mik­il. Hér eru bara all­ir mjög glaðir og komn­ir til þess að fagna.“

Lenti í fjöl­skyldu­boði með her­mönn­un­um

Vegna mik­ils mann­fjölda náði Harpa ekki að sjá meðlimi kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar nema úr mik­illi fjar­lægð.

„Ég hafði gert mér ákveðnar von­ir um að sjá fólkið í nær­mynd en sú varð ekki raun­in,“ seg­ir Harpa og hlær. „Ég sá flug­sýn­ing­una vel og kon­ung­legu vagn­ana úr fjar­lægð. Þar sem ég var staðsett nokkuð til hliðar við höll­ina þá sá ég þegar verið var að keyra drottn­ing­ar­bíl­inn til baka, en bara ekki með neina drottn­ingu inn­an­borðs. Þá sá ég alla her­menn­ina en þegar þeir höfðu lokið sín­um skyld­um þá söfnuðust þeir sam­an bakvið höll­ina með fjöl­skyld­um sín­um og fyrr en varði var ég bara allt í einu kom­in í fjöl­skyldu­boð með her­mönn­un­um!“ 

Fyrr en varði var Harpa umkringd hermönnum og fjölskyldum þeirra.
Fyrr en varði var Harpa um­kringd her­mönn­um og fjöl­skyld­um þeirra. Ljós­mynd/​Aðsend
Mannhafið var gríðarlegt.
Mann­hafið var gríðarlegt. AFP
Mikið var um dýrðir þegar Bretar fögnuðu 70 ára krýningarafmæli …
Mikið var um dýrðir þegar Bret­ar fögnuðu 70 ára krýn­ing­araf­mæli drottn­ing­ar. AFP
Þotur flughersins héldu eftirminnilega sýningu í háloftunum.
Þotur flug­hers­ins héldu eft­ir­minni­lega sýn­ingu í háloft­un­um. AFP
Harpa segir að stemmingin hafi verið mjög góð og allt …
Harpa seg­ir að stemm­ing­in hafi verið mjög góð og allt hafi gengið vel fyr­ir sig þrátt fyr­ir mik­inn mann­fjölda. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert