Ráðist að Rúrik í Mílanó

Rúrik Gíslason komst í hann krappann í Mílanó á dögunum.
Rúrik Gíslason komst í hann krappann í Mílanó á dögunum.

Fyrr­ver­andi fót­bol­takapp­inn Rúrik Gísla­son komst í hann krapp­an í Mílanó á Ítal­íu á dög­un­um þegar mann­eskja réðst að hon­um með brotna flösku og ætlaði að stela úri hans. Rúrik seg­ir frá uppá­kom­unni í story á In­sta­gram. 

Rúrik komst heill í burtu frá árás­ar­mann­in­um. „Mjög gott að vera kom­inn aft­ur í rækt­ina eft­ir geggjaðan tíma í Mílanó. Ég er reynd­ar mjög ánægður að ég er bú­inn að vera í rækt­inni svona mikið und­an­farið því að um miðja nótt, þegar ég var að ganga heim af barn­um, vildi mann­eskja stela af mér úr­inu. Hún kom með brotna flösku og sagði mér að láta sig fá úrið, og reyndi að ráðast á mig. En mér tókst að af­greiða það,“ sagði Rúrik á In­sta­gram. 

Hann gaf ekki nán­ari lýs­ing­ar á því hvernig hann náði að kom­ast frá árás­ar­mann­in­um. Rúrik er á sí­felldu flakki um heim­inn og hef­ur dvalið lengi í Þýskalandi eft­ir að hann vann Let's Dance þar í landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert