Markmiðið er að rækta hamingjuna

Unnur Pálmarsdóttir fer með hóp til Punta Cana 25. nóvember.
Unnur Pálmarsdóttir fer með hóp til Punta Cana 25. nóvember. Samsett mynd

„Hingað til hef ég verið að með heilsu­ferðir til Kanarí. Þegar Úrval Útsýn byrjaði að bjóða upp á ferðir til Punta Cana ákvað ég að stökkva á tæki­færið og bjóða upp á sam­bæri­lega heilsu­ferð fyr­ir huga lík­ama og sál til Punta Cana. Ferð til Punta Cana hef­ur lengi verið á óskalist­an­um mín­um enda eru fáir áfangastaðir sem bjóða upp á sömu nátt­úru­feg­urð og Punta Cana. Eitt af því sem heill­ar mig við staðinn eru hvítu enda­lausu strend­urn­ar og tært blátt hafið. Þess vegna lang­ar mig að að vera með æf­ing­ar und­ir ber­um himni þar sem við get­um notið hit­ans, sól­ar­inn­ar og fal­legr­ar nátt­úru,“ seg­ir Unn­ur Pálm­ars­dótt­ir far­ar­stjóri, mannauðsráðgjafi og hóp­tíma­kenn­ari. 

„Í þess­ari ferð verðum við staðsett á 5 stjörnu hót­eli, sem er með öllu inni­földu og er staðsett beint við strönd­ina. En í ferðinni mun­um við huga að nær­ingu, hvíld og hreyf­ingu. En þannig get­um við náð heild­rænni nálg­un að heilsu hug­ar og lík­ama,“ seg­ir hún. 

Aðspurð að því hvort hún hafi komið á þenn­an stað í Karíbahaf­inu seg­ir hún svo ekki vera. 

„Ég hef kennt um heim all­an og ferðast mikið en þessa draumeyju á ég eft­ir að upp­lifa og hlakka til með góðum og fjöl­breytt­um hópi. Þetta er fyrsta ferðin mín til Punta Cana. Ég hef þó ferðast til Suður Am­er­íku, en árið 2001 fór ég til Mexí­kó og var að kenna þar í sex vik­ur á mis­mun­andi stöðum, sem var al­gjör­lega ógleym­an­legt æv­in­týri og upp­lif­un.

Eins og ég sagði þá hef­ur mig lengi dreymt um að koma og heim­sækja þessa fal­legu eyju í Karíbahaf­inu. En um leið lang­ar mig að bjóða Íslend­ing­um upp á ein­staka upp­lif­un í Dóm­in­íska lýðveld­inu með mér þar sem við sam­ræm­um heilsu, fróðleik og njóta líðandi stund­ar. Menn­ing­in í PuntaCana hef­ur heillað mig mikið og því er þetta ein­stakt tæki­færi til að heim­sækja Dóm­in­íska lýðveldið í allri sinni feg­urð við Kyrra­hafið.“

Hvernig verður ferðin byggð upp?

„Í heilsu­ferðunum mín­um ein­blín­um við helst á góða styrkt­ar æf­ing­ar, vellíðan, holla nær­ingu og fróðleik. Dag­arn­ir hefjast með jóga, nú­vit­und, fusi­on Pila­tes eða fit­n­ess jóga á strönd­inni. Þar sem við erum sí­fellt að leita að fróðleik um heilsu, mataræði þá kenni ég dans­fjör, styrkt­ar og liðleikaþjálf­un og fleira verða á boðstóln­um auk fyr­ir­lestra sem fjalla um bætt heilsu­far lík­ama, sál­ar og huga. 

Mark­mið með ferðinni er að njóta lífs­ins, stunda heilsu­rækt und­ir ber­um himni og fara sam­an i skemmti­leg­ar skoðun­ar­ferðir. Íslend­ing­ar eiga oft erfitt með að slappa af en út frá mín­um fyrri ferðum hef ég lagt mikið upp úr því að njóta líðandi stund­ar, vera minna á sam­fé­lags­miðlum og í sím­an­um. Við lif­um á svo hröðum tím­um, tækn­in, breyt­ing­arn­ar og lífið er oft flókið. Því vil ég ein­falda lífið okk­ar og einn fyr­ir­lest­ur­inn minn fjall­ar um það mál­efni og einnig um mik­il­vægi svefns. Ég hvet alla til að slökkva á farsím­um og minnka sam­fé­lags­miðla notk­un og njóta líðandi stund­ar nús­ins. Svo er það ham­ingj­an sem er mik­il­væg í líf­inu og rækta ham­ingj­una innra með sér er einnig mark­miðið með ferðinni.“ 

Fyr­ir hverja er þessi ferð?

„Ferðin er fyr­ir alla ald­urs­hópa, heilsu­rækt­ar unn­end­ur og einnig þá sem hafa greinst með slit- og vefjagigt, sí-þreytu og fleira. Marg­ir Íslend­ing­ar hafa greinst með kuln­un í starfi og streit­an er als­ráðandi í ís­lensku sam­fé­lagi að mínu mati þar sem breyt­ing­ar eru frá degi til dags. Ferðin hent­ar öll­um ald­urs­hóp­um og hvaða formi sem þú ert í. Í síðustu ferð var ald­ur­inn frá 30 til 75 ára og skemmtu sér allri mjög vel og fundu eitt­hvað við sitt hæfi.

Unnið er með hvernig hægt er byggja upp lík­ama og sál án streitu og and­legs álags. Það er eng­in skylda að mæta í skipu­lagða dag­skrá, þar hef­ur hver sína henti­semi. Ferðin er einnig up­p­lögð fyr­ir þá sem hafa lent í kuln­un á vinnustað og eru að vinna sig frá streitu og hlaða batte­rí­in í líf­inu. Það sem mér finnst mik­il­væg­ast er að Punta Cana er dá­sam­leg­ur staður þar sem hvíld, slök­un og skemmt­un fara hönd í hönd og gera ferðina ógleym­an­lega. 

Við vilj­um öll vera betri í dag en í gær og vera fyr­ir­mynd­ir í dag­legu lífi. Við erum öll mis­mun­andi og því er mik­il­vægt að finna sér hreyf­ingu sem hent­ar okk­ur vel á lík­ama og sál. Sum­ir eru lengra komn­ir í sjálfs­vinnu og þjálf­un þar sem við erum öll á mis­mun­andi stað. Aðal­atriðið er að gef­ast ekki upp þótt á móti blási og halda ávallt áfram. Gef­um okk­ur tíma til að huga vel að lík­ama og sál og lifa í nú­inu. Stund­um koma nokkr­ir erfiðir dag­ar þá er ráð að stíga eitt skref aft­ur og tvö skref áfram.“

Hvernig verður dag­skrá­in?

„Dag­skrá­in fer mest­megn­is fram ut­an­dyra á strönd­inni í fal­legu nátt­úr­unni þar sem upp­lif­un er það sem skipt­ir mestu máli. Ég legg mikið up­p­úr því að hafa fjöl­breytt­ar æf­ing­ar og fyr­ir­lestra sem end­ur­hlaða lík­ama, vellíðan og sál. Einnig fjalla ég um það í fyr­ir­lestr­um hversu það er mik­il­vægt að passa vel upp á mataræðið, hvíld­ina og nær­ing­una. Oft gríp­um við í það sem hendi er næst til að nær­ast. Oft­ast er það skyndi­bit­inn sem verður fyr­ir val­inu þegar lít­ill tími er í sól­ar­hringn­um en sem bet­ur fer erum við orðin meðvitaðri um hvað við borðum allt árið. Mik­il­vægt er að huga vel að lík­ama og sál.

Lík­ams­rækt örv­ar ýmis efni heil­ans gera þig til­finn­inga­lega ham­ingju­sam­ari og hef­ur áhrif á eig­in vellíðan sem ger­ir það að verk­um að við verðum enn skap­betri í skamm­deg­inu. Ónæmis­kerfið styrk­ist með dag­legri lík­ams­rækt og hreyf­ingu. Sjálfs­traust og vellíðan á lík­ama og sál eykst. Þegar við stund­um meiri hreyf­ingu þá þurf­um við meiri svefn. Svefn­leysi get­ur meðal ann­ars stuðlað að því að þú borðar meira og þú finn­ur frek­ar til svengd­ar. Því er nauðsyn­legt að ná góðum svefni til að ná meiri ár­angri í heilsu­rækt og í lífi og starfi.  Við eig­um aðeins einn lík­ama og því mun­um við að góð heilsa er gulli betri. Því er hluti af dag­skránni að hvíla sig og hlaða lík­ama og sál.“

Á hvaða hót­eli verðið þið?

„Við mun­um vera á ynd­is­legu og glæsi­legu hót­eli sem heit­ir Barceló Bavaro Beach resort er glæsi­legt 5 stjörnu hót­el í Punta Cana staðsett við Bávaro strönd­ina sem er meðal 10 bestu strandsvæða heims sam­kvæmt Nati­onal Geograp­hic. Svo við mun­um svífa um strend­urn­ar á degi hverj­um þar sem hót­elið er staðsett við strönd­ina.“

Hvernig ertu að und­ir­búa þig fyr­ir ferðina?

„Það fyrsta sem ég geri er að huga vel að svefn­in­um mín­um, fæðinu og vera með nóg af orku fyr­ir hóp­inn minn. Þar sem ég kenni einnig lík­ams­rækt í Ree­bok Fit­n­ess fjór­um sinn­um í viku í Infrared hita allt að 39 gráðum þá er ég orðin nokkuð vön hit­an­um. Ég hleð einnig ork­una með því að fara út að ganga í ís­lenskri nátt­úru í Mos­fells­bæn­um með hund­un­um okk­ar, Car­men, og hlaupa á eft­ir syni mín­um Pálm­ari Jósep. Ég er svo hepp­in að eiga ynd­is­leg­an eig­in­mann, Gylfa Má, sem sér um son okk­ar og heim­ilið meðan að ég fer er­lend­is með ferðaþyrsta Íslend­inga. Það væri ekki hægt án hans.

Ég er hepp­in að góð vin­kona mín Helga Thor­berg leik­kona verður einnig far­ar­stjóri í sér­ferð okk­ar og hún hef­ur búið í Dóm­in­íska lýðveld­inu. Það er ynd­is­legt að stunda hreyf­ingu í fal­legu um­hverf­inu á Punta Cana sem er þekkt fyr­ir veður­sæld og ynd­is­legt lofts­lag allt árið um kring.  Sam­ver­an skipt­ir miklu máli og góð vinátta hef­ur mynd­ast í ferðunum og við höf­um verið dug­leg að viðhalda tengsl­un­um og já­kvæðum sam­skipt­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert