Breyttu sendiferðabíl í fallegt heimili

Hjónin Courtnie og Nate búa nú ásamt hundi sínum í …
Hjónin Courtnie og Nate búa nú ásamt hundi sínum í fallega uppgerðum sendiferðabíl. Samsett mynd

Árið 2019 ákváðu hjón­in Courtnie og Nate að segja skilið við hið hefðbundna líf, vinnu og heim­ili og festa kaup á sendi­ferðabíl. Bíl­inn gerðu þau upp sjálf og breyttu í hús­bíl, en þau hafa búið í hon­um síðastliðin þrjú ár og ferðast víða. 

Courtnie og Nate hafa verið dug­leg að skrá­setja ferðalög sín og lífið á veg­in­um á sam­fé­lags­miðlum og eru nú með yfir 2 millj­ón­ir fylgj­enda á TikT­ok. 

Höfðu enga reynslu

Bíl­inn, sem er af gerðinni Ram ProMa­ster 2017, tóku þau sjálf í gegn frá grunni en þau höfðu enga reynslu af slík­um fram­kvæmd­um og eyddu um 8 mánuðum í að gera bíl­inn að heim­ili sínu. Í hús­bíln­um var sal­erni, full­búið eld­hús, útisturta og svefnaðstaða. 

End­ur­taka nú leik­inn

Ný­lega festu þau kaup á nýj­um sendi­ferðabíl og hafa eytt síðustu 7 mánuðum í að gera hann upp. Síðustu ár hafa hjón­in sótt sér mikla reynslu og þekk­ingu á fram­kvæmd­um sendi­ferðabíla og í þetta skiptið bættu þau sturtu inn í hús­bíl­inn. 

Á heimasíðu þeirra bjóða þau upp á bæk­linga með leiðbein­ing­um um hvernig breyta eigi sendi­ferðabíl í heim­ili og deila góðum ráðum. Þá er hægt að fylgj­ast með ferl­inu á TikT­ok og In­sta­gram-síðu hjón­anna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert