Tælandi í Taílandi

Love Island-stjarnan Arabella Chi naut sín til hins ýtrasta í …
Love Island-stjarnan Arabella Chi naut sín til hins ýtrasta í Taílandi á dögunum. Samsett mynd

Love Is­land-stjarn­an og fyr­ir­sæt­an Ar­ab­ella Chi fór ný­verið í mikla æv­in­týra­ferð til Taí­lands, en hún hef­ur verið dug­leg að deila mynd­um frá ferðalagi sínu á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um. 

Chi er 31 árs göm­ul og er frá Lund­ún­um á Englandi. Hún tók þátt í fimmtu þáttaröð raun­veru­leikaþátt­anna vin­sælu, Love Is­land, sum­arið 2019. Chi kom inn í þætt­ina á þriðju viku, en var send heim af ástareyj­unni í fjórðu viku. 

Þrátt fyr­ir stutt stopp á ástareyj­unni vakti hún nokkra at­hygli, en hún er með yfir 600 þúsund fylgj­end­ur á In­sta­gram og nýtti fal­lega um­hverfið á Taílandi til þess að taka upp efni fyr­ir miðla sína. 

Mikið fjör og fjöl­breytt afþrey­ing

Chi lét sér al­deil­is ekki leiðast á Taílandi, en hún var stödd á eyj­unni Ko Tao þar sem hún sleikti sól­ina og naut fjöl­breyttr­ar afþrey­ing­ar sem í boði er á eyj­unni. Hún fór meðal ann­ars í fjór­hjóla­ferð og veiðiferð, heim­sótti fíla og snorklaði í Taí­lands­flóa. 

Eyj­an Ko Tao er eft­ir­sókn­ar­verður staður, en hún þykir sér­stak­lega fal­leg og sjarmer­andi. Ný­lega fór Gyða Dröfn, vörumerkja­stjóri hjá Danól, í fjög­urra vikna ferð til Taí­lands þar sem hún heim­sótti eyj­una og lærði að kafa þar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka